18.11.2007 | 14:11
EIGUM VIÐ AÐ SJÓÐA OKKUR SKYR Í KVÖLD, HEILLIN?
"Það kann að koma sumum á óvart, en það var ekki stór ákvörðun fyrir ungan hagfræðing í fjármálahverfinu hjá Wall Street, Sigurð Hilmarsson, að venda kvæði sínu í kross, byrja að flóa skyr og framleiða það ofan í New York-búa."
-Síðan hvenær hefur skyr verið flóað? -Þ.e. soðið? -Hvaða rugl er hérna í gangi? -Er ég bara búin að vera of lengi í útlöndum? Ég skil ekki svona málfar.
Sagði skilið við fjármálahverfið og hóf framleiðslu á skyri í New York | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
18.11.2007 | 04:32
FJÁRHAGSLEGT ÁFALL EÐA TILFINNINGALEGT?
Skelfilegt að lesa þetta. Og sem gömul sveitastelpa þá lýsi ég furðu minni á fréttamatinu:
"Ljóst er að mikið tjón varð á Stærra Árskógi í dag, því fjósið þar var eitt það fullkomnasta í Eyjafirði og voru pláss fyrir um 200 gripi í því."
Fréttir fyrir fréttamanninn af mölinni: Það er ekki það að fjósið hafi verið fullkomið og rúmað margar kýr sem er áfallið fyrir ábúendurna. Það brunnu inni 200 skepnur. Það er áfall. Samúð mín er öll hjá eigendum þeirra, og ekki fyrir mögulegt tekjutap. Það er einföldun þess sem ekki skilur. Og þeim sem skilja sárnar skilningsleysið.
Fjölmargir nautgripir dauðir - tugmilljóna tjón á Stærra Árskógi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.11.2007 | 19:18
GÁTA. Allir að spreyta sig!:
-Af hverju blogga ekki feministar um þessa frétt?
Svar: Þeir hafa ekki húmor fyrir henni!
Ps. Fleiri möguleg svör við spurningunni óskast.
Jólasveinninn má ekki segja hó hó hó! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.11.2007 | 18:59
WHEN THERE´S A WHEEL THERE´S A WAY!
Svo er verið að segja að konur kunni ekki að bakka!
Klessukeyrði nýja Airbus-þotu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2007 | 02:41
MIKKI OG LJÓTI REFURINN
Fallegi kisinn okkar hann Mikki dó í nótt. Kristján fann hann dauðann á litla túninu handan götunnar þegar hann var að fara í skólann í morgun. Rósa hljóp skelfingu lostin og hágrátandi og sótti hann í fanginu sínu. Við settum hann á forstofugólfið og stóðum þar yfir honum í faðmlögum þegar gömul kona bankaði uppá. Hún vildi bara segja okkur að gamall maður sem byggi við hliðina á henni hefði séð ref ná honum eldsnemma um morguninn. Hann drap hann bara. Það var ekkert blóð.
Nú er Mikki í dýrahimnaríki og leikur sér við gullfugla og silfurmýs. Kannski meira að segja silfurrefi. Það verða allir svo góðir þegar þeir deyja.
Það verður jarðarför eftir skóla í dag.
11.11.2007 | 22:27
GETRAUN Á SUNNUD.KVELDI
jæja.. lauflétt núna.. ég er svo hugmyndasnauð í kvöld. :)
..ég hugsa mér manneskju..
2.11.2007 | 17:18
ÞEIR STANDA SIG VEL ÞJÓFARNIR Í VOPNALEITINNI
...allavega fóru þar röskir menn þegar þeir gerðu upptæk skrautsverðin sem sonur minn, þá 10 ára, ætlaði með heim rétt fyrir jólin fyrir 2 árum.
Um var að ræða 2 kassa, annann hafði ég gefið guttanum en hinn ætlaði stáksi að gefa Stefáni frænda. Þetta var þá það allra vinsælasta hjá strákum hér enda þrælflott; 3 skrautleg samúræjasverð í mismunandi stærðum og með fylgdi vandaður flauelsstandur sem þessu var stillt upp á. Auðvitað voru þau með öllu bitlaus, enda ekki ætluð til hættulegra bardaga heldur einungis að taka sig vel út í herberginu við hliðina á módelum og öðru dóti sem oft prýðir strákaherbergi.
Þeir vösku menn tilkynntu fylgdarmanni drengsins að svona skrautsverð gætu mögulega verið gerð hættuleg ef þau væru tekin í stálsmiðju og brýnd þar til þau bitu. Þeir sögðust að vísu ekki finna neitt sem segði að þetta væri algerlega bannað, svo að þessu sinni myndu þeir ekki eyðileggja dótið og ef við foreldrar hans vildum, þá mættum við taka þau með okkur út aftur í bakaleiðinni.
Enga kvittun fékk barnið fyrir upptökunni og þegar ég spurðist fyrir um sverðin ógurlegu næst þegar ég fór frá Íslandi, þá kannaðist enginn við neitt. Þessi sverð voru þá seld á um 7.500 krónur settið hér í Englandi og því get ég einungis ályktað að þjófurinn í íslenska tollarabúningum hafi náð að stela af mér 15þúsundkalls virði af jólagjöfum handa einhverjum kátum, litlum íslenskum frændum sínum eða sonum. Þetta þótti mér ómerkilegt.
Ríkislögreglustjóri með viðbúnað vegna komu Vítisengla til landsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2007 | 02:33
ÉG TREYSTI ÞÉR EKKI
... til að stjórna eigin lífi, þess vegna ætla ég af góðmennsku og greiðasemi að hafa vit fyrir þér. Ég veit að þú ert fullorðinn og ættir samkvæmt því að vera orðinn fær um að taka ákvarðanir og nota þá dómgreind sem þér var gefin, en þú ert nú bara Íslendingur og þar með auðvitað glórulaus um það hvað þér er fyrir bestu. Ég er að vísu Íslendingur líka, en munurinn á mér og þér er öllum ljós. Ég veit þetta og kann þetta en þú myndir örugglega bara fara þér að voða. Þó að ég fari létt með að galdra fram nautalundir með bakaðri og bernes og allir mínir gestir séu nett hressir eftir sjattódupap með steikinni og rojalkaffi í settinu á eftir, þá veit ég að þér tækist að rústa heimilinu og sundra fjölskyldunni ef þér yrði leyft að kaupa vín um leið og þú verslar í matinn. Það gengur auðvitað ekki að leyfa þér að ráðskast með sjálfan þig, eins mikill óviti og þú ert með eigin hag.
Mundu svo bara að vera ljúfur og þægur litli þegninn minn og exa við flokkinn okkar í kosningunum. Við erum búnir að raka að okkur vinsældum hingað til með dúndursölu á fjöllunum og fossunum og með smá heppni getum við skrifað undir afsal á landinu innan tíðar.
Treysti á stuðning þinn nú sem fyrr.
-Þinn vinur;
Valdi (Fyrirþig).
Áfengið er komið í matvöruverslanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2007 | 15:31
VÍSA TIL FÖÐURHÚSA OG FÖÐURLANDS...
Hér í uppsveitum Nottinghamskíris náði hitinn að komast uppí ótrúlegar átján gráður í dag og enn skrítnara er að þennann sama dag telur sólarhringurinn 25 klukkustundir. Á meðan fennir í hvítakaf á klakanum og allt er í fjöri samkvæmt hefð.
Datt þá í hug örlítið vísukorn sem ég læt bara flakka. Lofa að hrekkja ekki oft í bundnu máli, enda aðrir betur vaxnir í svoleiðis:
Úti voru átján gráður
Allsráður að vetri hló
Auraríkur, fannafjáður
Flýgur landinn út í mó.
RNF: Hálka stærsti þátturinn í því að flugvélin rann út af braut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.10.2007 | 19:07
HÖRMULEGT SLYS!
Ég las þetta frétt með tárin í augunum. Þetta er hörmungaratburður og rifjaði upp einn af sorglegustu dögum æskuáranna. Það var þann 23. september árið 1976 þegar á fimmta hundrað fjár drukknaði í Svartá í Húnavatnssýslu er aðhald gaf sig á girðingu nátthagans við Stafnsrétt þegar reka átti féð í réttina.
Eins og flestir sem þar voru, þá átti ég þarna kindur og lömb og var búin að hlakka mikið til að sjá þessa vini mína, "ferfættu börnin mín", koma stökkvandi inn í almenninginn, hraustleg og falleg eftir veruna á fjalli. Skemmtilegasti dagur ársins breyttist á örfáum andartökum í þá hræðilegu martröð sem það var að sjá blessaðar skepnurnar ryðjast í ánna og drukkna þar hundruðum saman án þess að nokkur fengi við neitt ráðið. Því gleymir enginn sem það upplifði.
Ég sendi mínar einlægustu samúðarkveðjur í sveitina!
Tugir fjár drápust þegar flutningabíll valt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.10.2007 | 22:21
SVONA HARÐBRJÓSTA...
...hef ég aldrei verið!
En það væri nú gaman að reyna..
Sektuð fyrir að kremja bjórdósir með berum brjóstunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2007 | 19:51
UPPGJÖR VIÐ ANDLEGA AFTURGÖNGU - SPOR FYRIR SPOR
Það sem hófst með græskulausu gríni á tilbreytingalitlu föstudagskvöldi meðan börnin sváfu og bóndinn hraut, hefur nú verið snúið uppí grínlausa græsku, þökk sé að mestu bloggóvinkonu minni og hennar makalausu hirð. http://jenfo.blog.is/blog/jenfo/entry/342939/
Skítt með þó hún og kórinn hennar kalli mig öllum illum nöfnum, s.s. ómenni, vitfrring, hálfvita, mannhatara, rasista, nasista, gayhatara, kvenhatara og heimska sveitahóru. Ég lifi það alveg af, þó vissulega sárni mér að þurfa að hugga börnin mín vegna þessa. En í fjölskyldunni minni eru málin rædd og útskýrð, svo þessar árásir skaða þau vonandi ekki til frambúðar.
Hitt þykir mér verra, að sárasaklaust fólk sem af góðmennsku sinni og vinarþeli gekk mér til varnar þegar mest gekk á, hefur sett sig í skotlínuna og fengið yfir sig drulluregnið frá þessum "kærleiksríku" herbúðum sem umsvifalaust sviftir menn æru og heilindum ef þeir eru ekki nákvæmlega sammála öllu sem útúr þeim kemur.
Það, að einhver últra bitur kellingarbelja (já, nú má ég!) sem heldur að það sé runnið af sér þó hún sé (tímabundið?) hætt að drekka og dópa, hendi mér út af listanum sínum, er mér ekki nema heiður. Skítlegt eðli á ekki upp á pallborðið hjá mér og hræsni hennar vekur mér viðbjóð. Ég vona líka að hún haldi sig hér eftir sem lengst frá mér og mínum og hafi vit á að snautast til að lesa tólf-spora bókina sína. Ég veit ekki á hvaða spori hún telur sig vera, en fyrir mér er hún andleg afturganga og ég frábýð mér þessháttar félagsskap.
Húmorinn og húmorsleysið er svo enn annað umræðuefnið. Verandi með minn háralit hef ég ekki farið varhluta af ljóskubröndurunum. Margir hafa mér þótt frekar þunnir en aðrir alveg bráðfyndnir, og sömu sögu má segja með Hafnarfjarðarbrandarana. Hef bæði heyrt þá marga og sagt þá marga. Ætti þar samkvæmt trúarbrögðum húmorslausra að vera að höggva ansi nærri eigin ranni, þar sem bæði börnin mín eru ljóshærð og eiga ættir í Hafnarfjörðinn. Það væri því að mismuna fólki eftir húðlit og þjóðerni ef ekki mætti gera grín að (svart-)"lituðu" fólki, rétt eins og okkur hinum "litlausu".
Ég skulda ekki afturgöngunni neinar skýringar á eðli mínu og innréttingum. Hitt þykir mér verra, að henni hefur tekist að skilja eftir sig spurningamerki í hugum fólks sem ég met meira. Sumir þeirra vita þó að einn af mínum albestu vinum heitir Ian Sharp og er ættaður frá Jamaika. Ég hef aldrei séð það svartara þegar kemur að hörundslit en þann yndislega og fluggáfaða mann, en hann væri varla fjölskylduvinur og mikils metinn á heimili okkar ef ég væri sá grimmlyndi rasisti sem afturgangan telur mig vera.
Það kom líka sterklega til greina að hennar mati að ég væri á móti réttindum samkynhneygðra.. og kvenhatari ef allt annað brygðist nú. Það gengi kannski að reyna að klína þeim óþverrastimpli á mig líka, ef ekki væri fyrir þá staðreynd að ég hef alla tíð, bæði í ræðu og riti, talið það sjálfsagðan hlut að hommar og lesbíur nytu sömu réttinda og gagnkynhneygðir. Og þetta með kvenhatrið væri nú bara fyndið ef það hefði ekki komið í þessu sama viðhengi. Ég finn ekki hjá mér hatur til nokkurrar manneskju, en reiði mín og fyrirlitning í garð hræsnara eins og afturgöngunnar náðu tilfinningum mínum fyrir ókunnugum á áður óþekkt styrkleikastig.
Þeir bloggvinir sem ennþá hanga hér inni með óbragð í munni, treysta sér ekki rökræður nema með persónulegu skítkasti og hafa ekki húmor fyrir sjálfum sér né öðrum, er bent á að nú er rétti tíminn til að fara. Ég hef aldrei tiplað á tánum kringum heimatilbúinn vellíðunarjákór og ætla andskotinn hafi það ekki fara að byrja á því á gamals aldri!
19.10.2007 | 22:06
OFT RATAST KJÖFTUGUM...
Watson: Ég er miður mín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2007 | 17:09
RARE AS HENS TEETH
Rangfeðruð börn eru talin búa í fjórða hverju húsi en rangmæðruð börn eru næstum eins sjaldgæf og hænutennur. Fyrir kom þó að reynt var að fela óléttuna og fyrir kom líka að reynt væri að fela þær óléttu meðan á "ástandinu" stóð.
En að Bretaprinsessa hafi komist upp með að leyna meðgöngu, fæðingu og ættleiðingu... Oh well, Árni Johnsen fór inná Alþingi eftir fangelsisvistina meðan flestir sellufélaga hans fóru bara inná áfangaheimili, so I guess anything´s possible.
Segist launsonur Margrétar prinsessu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2007 | 23:25
GREINDARBOTNSÆFINGAR
Finnst ekki mbl.is vera komið nóg af greindarbotnsæfingum starfsmanna sinna:
Innlent | mbl.is | 16.10.2007 | 17:21
Hæstiréttur staðfesti í dag farbann yfir karlmanni sem grunaður er um brot á hengingarlögum vegna launagreiðslna til erlendra starfsmanna við virkjanaframkvæmdir á Austurlandi. Í Héraðsdómi Austurlands var manninum bönnuð för frá Íslandi til þriðjudagsins 23. október og staðfesti Hæstiréttur það í dag.
Farbann staðfest í Hæstarétti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2007 | 22:58
SIÐLEYSÍNA SVERRISDÓTTIR, BLESS OG BURT MEÐ ÞIG!
Flott hjá konum í Frjálslynda flokknum að lýsa vantrausti á eiginhagsmunapotara í pólitík sem búin er að skíta svo í nytina sína að hún á hvergi innkomu í trúverðugan málflutning meir.
Þetta hefur nákvæmlega ekkert með kynferði hennar að gera, heldur spillingu, siðblindu, græðgi og ódrengskap.
Vantrausti lýst á Margréti Sverrisdóttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 19.10.2007 kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
16.10.2007 | 01:00
RÚNKI HLEYPUR SKÍTASPRETT
Fyrir rúmum þrjátíu árum lét hrekkjusvín úr Skagafirði ungan húsasmið hlaupa skítasprett.
Rúnki Friðriks var að smíða íbúðarhús móður þeirrar stuttu og stjúpa. Hann var þekktur galsari og endalaust að stríða og hrekkja ungu dömuna. Allt þó í góðu.
Heimasætunni fannst einhverju sinni að nú hefði hann lagt inn fyrir almennilegri hefnd. Eitthvað sem gleymdist ekki í bráð, og fréttist helst um sveitina.
Hún fékk í lið með sér litla frænku sína, Hrefnu dóttur Bjarnheiðar og séra Sigfinns, en hún var þá í stuttri sumardvöl hjá Siggu frænku. Hefur þá varla verið meira en 7-8 ára, yndisleg, hugmyndarík og stórskemmtileg skotta. Saman settust þær niður og brugguðu launráð.
Hugmyndin fæddist og fékk á sig spennandi mynd. Þær ætluðu að láta Rúnka laxera og fylgjast með því þegar hann hleypi skítaskreppinn. Það var nefnilega ekki komið klósett í nýbygginguna á Lækjarbakkanum, svo hann varð að fara yfir í skólahús til að ganga örna sinna, örugglega góða 1-200 metra.
Þó var ákveðið atriði sem þvældist fyrir þeim frænkum. Ýmislegt höfðu þær í vösunum en ekki laxerolíu, hún fékkst ekki annars staðar en í apótekinu á Króknum. Þangað voru 30 kílómetrar og hvorug þeirra hafði bílpróf.
Heimasætan vissi hvaðan hún hafði hrekkjagenin og ákvað að leita til móður sinnar með þetta vandamál. Sú gamla, þá auðvitað á besta aldri, brást við með gleðibrosi og sagðist gjarnan myndu aðstoða við verkið. Hafði sjálf ekki farið varhluta af Rúnkahúmornum.
Nú var steikt þessi yndislega ýsa gerð görótt kokteilsósa með. Frú Sigríður vissi að þetta uppáhaldsmaturinn Rúnka, enda var hann hjá henni í fæði meðan á byggingarvinnunni stóð.
Nornirnar þrjár voru slægar og slóttugar, og vissu að ef enginn annar æti kokteilsósuna, myndi Rúnki réttilega gruna þær um græsku. Hann var á verði fyrir hrekkjubrögðum þeirra, rétt eins og þær voru fyrir hans.
Einhverjum varð að fórna og sá eini sem til greina kom var Kristján stjúpi. Held þó að Hrefna hafi komið honum til bjargar á örlagastundu. Ekki datt þeim mæðgum það í hug.
Hrekkurinn heppnaðist með miklum bravúr í alla staði. Þrenningin beið þolinmóð skamma stund en argaði svo úr hlátri þegar smiðurinn gaf frá sér stunu, henti frá sér hamrinum og hljóp eins og fætur toguðu niður í skólahús. Þar veltust þær um af hlátri meðan óhljóðin bárust frá dollunni og óprenthæft bölvið og hótanirnar í eiganda afturendans sem á henni sat.
Ó, í þá gömlu, góðu daga.
Laxerolía í samlokum í Brekkubæjarskóla á Akranesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.10.2007 | 00:36
AHHH MMM
Lögregla varar við veitingahúsapöntunum í tölvupósti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2007 | 03:23
-WHICH WAY DO YOU DRESS, SIR?
-"Ofan í hvora skálmina girðirðu skottið á þér, herra minn?" Ég fékk hláturskast þegar ég komst að því um daginn að karlmenn eru spurðir þessarar stórgóðu spurningar þegar þeir láta sauma á sig jakkaföt hjá klæðskera.
Ég hélt mig vita allt það merkilegasta í "mannamálum", en ég er enn að komast að svona krúttlegum gullmolum um kallana okkar sem vert er að vita.
-Fer þetta ekki svolítið eftir því hvort menn eru rétthentir eða örvhentir þegar þeir hagræða á sér fermingarbróðurnum þarna á miðhæðinni? -Eða eru þessi djásn bara svona randomlí misvísandi? Hahaha, ég vona að mér verði fyrirgefin fáfræðin en þetta er bara svo kátlega skemmtilegt.
-Hvoru meginn hangir þinn?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.10.2007 | 02:01
DAUÐIR HUNDAR SKÍTA EKKI
Skattpíning og verðlag á Íslandinu góða er löngu fræg að endemum, en er ekki fulllangt gengið að skattleggja löngu dauða hunda!? -Er eftirlitið fólgið í því kanna árlega hvort kvikindin séu ekki örugglega enn jafn dauð og síðast þegar hræin voru skoðuð?
En þá að öðru máli, hundslegu líka. Dóttir mín fékk hvolp í afmælisgjöf núna um daginn. Átta vikna Border Collie "dama" var lögð í fang átta ára Rósarinnar og ljóminn í augum hennar lýsir ennþá upp umhverfið viku seinna. Höbbíhönkið mitt lét sér fátt um þessa fjölgun fjölskyldunnar, en við krakkarnir (alltsvo ég og krakkarnir) rúlluðum um öll gólf í ærslum og leikjum, með tilheyrandi awww, ohhh og útsígútsí hljóðsýnishornum.
En paradísarvist mín var mun styttri en Adams, því þetta litla sæta krútt er alger skítafaktoría og mér er ekki nokkur leið að koma henni í skilning um að svonalagað geri ekki vel uppaldar smátíkur innanhúss. En það er sama hversu oft farið er með hana út í garð eða gönguferð, alltaf skal skepnan vera búin að skíta í kílóavís þegar við mætum niður á morgnana.
-Eru ekki einhverjir samúðarfullir hundeigendur hérna sem gætu leiðbeint mér með það hvernig maður koppvenur kvikindið?
Tók gjald fyrir eftirlit með aflífuðum hundum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)