Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

VÍST SKIPTIR HÚN MÁLI

Ég ætla ekki að lýsa vonbrigðum mínum þegar ég komst að því að Philips átján tommu væri bara SJÓNVARP! Angry
mbl.is Sarah segir stærðina engu skipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BJÓÐUM HONUM HÆLI OG RÍKISBORGARARÉTT

... það eru hvort sem er allir aðrir velkomnir, því ekki að bæta einum við?

http://universe-review.ca/R10-33-anatomy.htm

Hann fer líka vel á skákhi(y)llunni við hliðina á Bobby. Og yrði örugglega ljúfur liðsauki hjá baráttuglöðum austantjaldsjörlum með járnvilja jafnt sem femínösnum með fánastöngina í (gegnum) hjartastað. Eða þar sem venjulegt fólk hefur hjartastað. Og veisla fyrir örvhentar engisprettur (VG).

Welcome to Iceland! - How do you like Iceland?

 


mbl.is Kasparov í 5 daga fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JENS GUÐ...

..hefur stundað gervigrasafræðirannsóknir að minnsta kosti jafn lengi. En hann verður ekki sjötugur í lok mánaðarins. Salút samt. Wizard

(Alltaf skulu þessir Skagfirðingar geta fundið sér eitthvað til að skála fyrir!)


mbl.is Hefur stundað grasafræðirannsóknir í hálfa öld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG ÞORI AÐ VEÐJA AÐ...

..ef þessi dýranauðgari næst, þá fær hann mun harðari refsingu en karlar sem nauðga konum á Íslandi. Fylgist vel með málinu, íslensku dómarar, sem eruð að gefa "skammstrákur"-dómana í nauðgunar- og öðrum kynferðisafbrotamálum.
mbl.is Grunaður um að hafa nauðgað hundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER EKKI TÝNDUR HLEKKUR Í ÞESSARI SÖGU?

Kona er sektuð um hundrað þúsund kall fyrir að aka á dreng á götu á Selfossi. Í fréttinni kemur fram að bæði ökumanni og föður drengsins ber saman um að hún hafi ekið á gönguhraða, sem ætti því að jafnast á við harða hrindingu. Hvergi kemur fram að hún hefði ekið á barnið á/eða við gangbraut eða verið undir áhrifum áfengis eða lyfja. Strákurinn, skilst manni, féll í götuna og kjálkabrotnað í fallinu.

-Eru ekki götur ætlaðar fyrir bifreiðar og önnur vélknúin ökutæki? -Eru ekki alla jafna gangstéttir meðfram þeim, sem ætlaðar eru fyrir gangandi "vegfarendur"?

-Fyrir hvað var konan sektuð? Og í framhaldi af því, ef "sekt" þótti sönnuð, er þá ekki kominn grundvöllur fyrir foreldra götustráksins kjálkabrotna á málshöfðun til miskabóta?

-Er ég ein um að þykja eitthvað vanta hérna?


mbl.is Dæmd í sekt fyrir að aka á dreng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EINKENNILEG ÁRÁTTA ÞETTA

The Queen and Philip and their four children..að geta aldrei haldið upp á afmæli á réttum dögum. Drottningarhjónin fögnuðu í dag 60 ára brúðkaupsafmæli sínu, sem er í raun ekki fyrr en á morgun. Það er í takt við þann furðusið að "opinber" afmælisdagur hennar er allt annar en hennar raunverulegi afmælisdagur. -Er eitthvað alvöru við þetta fólk?

Dettur þá í hug setning sem grínkallinn Jonathan Ross sagði um Heather Mills: "Heather Mills McCartney - what a fucking liar! I wouldn´t be surprised if we found out she´s actually got two legs!" Tounge (afsakið orðbragðið)

Ég var að horfa á heimildarmynd á BBC frá Panorama núna áðan. Í dag eru liðnir 200 dagan síðan Madeleine McCann var rænt þann 3ja maí sl. Þarna er sagan rakin í návígi og látið að því liggja að gátan sé við það að leysast. Guð gefi að það reynist rétt.

 


mbl.is Demantsbrúðkaup drottningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAR ER BLAÐAMANNAFÉLAGIÐ NÚNA?!

Geta allir sem vilja koma vörum sínum eða fyrirtækjum á framfæri fengið svona "frétt" um sig hjá Mogganum?? Með sjónvarpsviðtali og allt, bara til að minna á að búðin sé til og í fullum rekstri og selji allt mögulegt??

Það er ekki eins og hún eigi fimmtugs afmæli eða eitthvað, nei nei, bara 27 svo ekki er stórafmæli tilgangurinn. Og svo ef maður vill sjá "fréttina" þá er maður neyddur til að horfa fyrst á aðra auglýsingu frá Flugleiðum! Angry

Djöfuls siðleysi og smekkleysa! Blaðamannafélagið á að láta svonalagað til sín taka. Það er ekki í verkahring blaðamanna að búa til auglýsingar!!


mbl.is Fornlegir munir á Vesturgötunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EIGUM VIÐ AÐ SJÓÐA OKKUR SKYR Í KVÖLD, HEILLIN?

 "Það kann að koma sumum á óvart, en það var ekki stór ákvörðun fyrir ungan hagfræðing í fjármálahverfinu hjá Wall Street, Sigurð Hilmarsson, að venda kvæði sínu í kross, byrja að flóa skyr og framleiða það ofan í New York-búa."

-Síðan hvenær hefur skyr verið flóað? -Þ.e. soðið? -Hvaða rugl er hérna í gangi? -Er ég bara búin að vera of lengi í útlöndum? Ég skil ekki svona málfar.


mbl.is Sagði skilið við fjármálahverfið og hóf framleiðslu á skyri í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FJÁRHAGSLEGT ÁFALL EÐA TILFINNINGALEGT?

Skelfilegt að lesa þetta. Og sem gömul sveitastelpa þá lýsi ég furðu minni á fréttamatinu:

"Ljóst er að mikið tjón varð á Stærra Árskógi í dag, því fjósið þar var eitt það fullkomnasta í Eyjafirði og voru pláss fyrir um 200 gripi í því."

Fréttir fyrir fréttamanninn af mölinni: Það er ekki það að fjósið hafi verið fullkomið og rúmað margar kýr sem er áfallið fyrir ábúendurna. Það brunnu inni 200 skepnur. Það er áfall. Samúð mín er öll hjá eigendum þeirra, og ekki fyrir mögulegt tekjutap. Það er einföldun þess sem ekki skilur. Og þeim sem skilja sárnar skilningsleysið.


mbl.is Fjölmargir nautgripir dauðir - tugmilljóna tjón á Stærra Árskógi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GÁTA. Allir að spreyta sig!:

-Af hverju blogga ekki feministar um þessa frétt?

Svar: Þeir hafa ekki húmor fyrir henni! LoLGrinToungeW00t

Ps. Fleiri möguleg svör við spurningunni óskast. Cool


mbl.is Jólasveinninn má ekki segja „hó hó hó!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband