SVONA HARÐBRJÓSTA...

...hef ég aldrei verið!

En það væri nú gaman að reyna.. W00t


mbl.is Sektuð fyrir að kremja bjórdósir með berum brjóstunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Dalkvist

Það væri gaman að verða vitni að þeirri tilraun hjá þér

Ágúst Dalkvist, 24.10.2007 kl. 23:09

2 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Hahahaha.........ansi harðbrjósta þessi kona. Sílikonið hlýtur að hafa kalkast

Margrét St Hafsteinsdóttir, 25.10.2007 kl. 01:08

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hahaha, margt fellur þér nú til gæskan!

Vonandi fer nú engin að krýna þig klámdrottingu!?

En gaman væri að vita...?

Magnús Geir Guðmundsson, 25.10.2007 kl. 01:35

4 identicon

Þernan dóminn þungan hlaut,

þörf fann samt á þessu,

skellt´á skeið og bjórdós braut

í barmafullri pressu

Hrúturinn (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 12:40

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Harðbrjósta, haha. Klámhundur. Er að spá í eyða þér úr bloggvinalistanum

Markús frá Djúpalæk, 25.10.2007 kl. 14:26

6 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Kramdar bjórdósir gera ekki flugu mein.

Benedikt Halldórsson, 25.10.2007 kl. 15:10

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ó jú Benedikt minn, þær hafa löngum margar STEINDREPIST á að smjatta á lögginni úr þeim!

En ´"Mjúka eða harða" HGE, má til að..

Sögð er skækja skjögrandi,

skefjalaus og rokkandi.

En líka einkar ögrandi,

eggjandi og lokkandi!

Magnús Geir Guðmundsson, 25.10.2007 kl. 18:30

8 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Klámhundur væri flott viðbót í ferilskrána.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 26.10.2007 kl. 01:00

9 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Maður á aldrei nógu langa lista af skammarnöfnum til að setja í starfsferilsskrána.

Markús frá Djúpalæk, 26.10.2007 kl. 08:50

10 Smámynd: Fríða Eyland

það er nú spurning góða

Fríða Eyland, 31.10.2007 kl. 22:25

11 Smámynd: Árni Gunnarsson

Var að rekast á þessa færslu fyrst núna.

Aldrei hefði ég trúað því að það ætti eftir að hvarfla að mér löngun til að breytast í bjórdós!

Árni Gunnarsson, 6.11.2007 kl. 00:41

12 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Haha Árni, skensið þitt rifjar upp annað grín frá yndislegum vini mínum, Kristjáni Haukssyni, sem lést því miður fyrir aldur fram fyrir nokkrum árum. Kristján, sem var kallaður Bassi, átti leirbrennslufyrirtæki sem hét Blær, áður Gler og Postulín. Þar vann ég hjá honum um tíma og hafði þann glerfína titil sölustjóri, þó ég hafi nú í raun bara verið verkamaður sem gekk í öll störf, enda vinnustaðurinn ekki mannmargur. Þar myndaðist afar góður vinskapur með okkur Bassa, svo og Ísfoldu konu hans og barna.

Ég átti á þeim tíma stálpaðan kettling sem ég fékk ekki af mér að skilja eftir einan heima allann daginn meðan ég var í vinnunni. Hafði fengið leyfi til að hafa hann með mér í vinnuna á morgnanna og þar var hann orðinn eins og "heimilisköttur". Eitt sinn sem oftar sátum við Bassi á skrifstofunni minni, sötruðum morgunkaffið, lögðum á ráðin og ræddum verkefni dagsins. Kisa hafði hringað um sig og sofnað í kjöltunni á mér og snjókornin liðuðust niður í logninu fyrir utan gluggann. Þá kom allt í einu stríðnisglott á Bassa og hann sagði:

Sit ég hér og sit ég hér

og segi með mér

kátt væri að vera kötturinn

í klofinu á þér.

--------------------------

Bassi var mikill húmoristi og vel hagmæltur.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 6.11.2007 kl. 09:07

13 Smámynd: Árni Gunnarsson

Man ekki betur en þú hafir einmitt unnið þarna þegar þessi ágæti maður vann fyrir mig Reykjavíkurplattann. Þetta var stórmerkilegur gripur gefinn út í tilafni af hundrað ára afmæli Reykjavíkur. Á plattanum var innsigli Reykjavíkur sem teiknað var af dönskum landmælingamanni og þetta merki höfuðborgarinnar var í gildi langt fram á síðustu öld; lítið notað að vísu. Ragnar Lár fann þetta innsigli fyrir mig á Þjóðminjasafninu og teiknaði það upp. Ég bað um 500 eintök en aldrei voru framleidd nema 250 því fyrirtækið hætti starfsemi maðan á þessu stóð.

Það var gaman að þessu og ég held nú að ég hafi getað selt fyrir kostnaði, eða næstum því.

Nú er þessi platti að sjálfsögðu ófáanlegur.

Og svo kemur að því að ég verð ófáanlegur líka.

Árni Gunnarsson, 6.11.2007 kl. 17:16

14 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú ert nú meira virði en plattarnir góðu, enda bara framleiddur í einu einstöku eintaki.

Ég var hætt eitthvað áður en fyrirtækið hætti en vel má vera að ég hafi komið að þessu á fyrri stigum. Þarna voru gerðir margir fínir munir og plattarnir þínir ættu að vera komnir með verðmætt söfnunargildi.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 6.11.2007 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband