Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
24.6.2008 | 02:21
Ef svalt er kalt þá pant vera svellið
Stjörnuspá
Lýsir yfir sjálfstæði frá Bretlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.6.2008 | 05:47
Steini Mensa
"Þorsteinn sagði að hvítabirnir ferðist ótrúlegar vegalengdir á hverju ári. Þeir eru harðger dýr sem geta lifað mánuðum saman án matar og éta þá gróður og þang".
"Þessi vegalengd frá sjó og upp á hálendi Íslands er ekkert stórkostlegt þó að þetta sé langt og að það sé skrýtið að enginn hafi séð til hans ef þetta er björn," sagði Þorsteinn að lokum.
M_aðurinn
E_r
N_áttúrlega
S_auðheimskur
A_ndskoti
... og fullkomlega óábyrg orða minna og vitaskuld ekki að tala um Þorstein Sæmundsson forstöðumann Náttúrustofu Norðurlands. Það væri því með öllu ósæmilegt ef lokað væri á tenginguna.
Hálendisbjörn er hugsanlegur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.6.2008 | 08:17
Vélrænn kynþokki
Þokkadísin Ema hefur fallegar, ávalar línur, sendir fingurkossa, syngur, sveigir sig og beygir. Hún er að vísu ekki nema rétt rúmt fet á hæð og einungis véldúkka úr einhverju framúrstefnulegu vekjaraklukkuefni svo hvernig og á hvaða hátt hún gæti komið ástþyrstum karlmönnum, nú eða konum, að gagni kynferðislega er mér eiginlega fullkomin gáta.
Eitthvað svona álíka vélrænt og ömurlegt fyrirbæri og skipulagðar rúmferðir á fyrirfram ákveðnum kvöldum með ljósin slökkt og trúboðann biblíulausan. Mér steinhættir nú bara að standa við tilhugsunina eina saman...
Hérna er speki sem er mun merkilegri en hún lítur út við fyrstu sýn:
Vélmenni lifnar við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
17.6.2008 | 20:45
Spyrjum bara Hjalta!
Úr fréttum fyrr í dag: "Segir Hjalti að sennilega sé hvítabjörninn eldra karldýr en þau eru yfirleitt róleg og sofa mikið". - Yeah, right!
Einnig úr fréttum fyrr í dag: "Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur að höfðu samráði við yfirvöld, boðist til að standa straum af kostnaði sem kann að hljótast af því að bjarga ísbirninum sem gekk á land í Skagafirði og koma honum í öruggt og varanlegt umhverfi. Í tilkynningu frá Novator segir, félagið líti á björgun ísbjarnarins sem framlag til náttúruverndar þar sem um sé að ræða alfriðað dýr".
Nú væri forvitnilegt að vita hversu háa ávísun Björólfur kemur til með að þurfa að skrifa fyrir þetta framlag sitt til náttúruverndar. Fyrr gætum við varla svarað ef við værum spurð á hvað kílóið af bjarndýrakéti leggði sig þessa dagana.
Daprir en um leið sáttir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.6.2008 | 17:04
Syngjum um bangsa
Svona syngja litlu börnin á Englandi:
The Polar Bear (Tune: My Bonnie)
The polar bear lives in the Arctic,
He never gets cold in a storm,
He swims in the icy cold water,
His heavy coat keeps him so warm.
Warm, warm, warm, warm,
His heavy coat keeps him so warm, so warm.
Warm, warm, warm, warm,
His heavy coat keeps him so warm!
Ætti ekki að vera neitt vandamál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.6.2008 | 14:48
Auðvitað virðir fólk ekki flugbannið
... þetta eru Íslendingar og vísasta leiðin til að fá fólk á staðinn er að banna aðgang.
Flugbann getur reyndar verið ýmiskonar. Nú um helgina datt Rósa mín aldeilis í lukkupottinn og vann vikudvöl í sumardvöl hjá KFUM&K í Kaldárseli. Það varð heldur betur kátt í höllinni og nú átti að hafa hraðar hendur til að koma stelpunni heim, því dagskráin átti að hefjast á mánudag.
En Adam var ekki lengi í Paradís því ódýrasta farið heim á sunnudag og til baka um næstu helgi var 61 þúsund krónur... og vegna þess að farþeginn er bara 8 ára þá bættust við fimm þúsund krónur fylgdargjald hvora leið. Fargjaldið fyrir krakkann var þá komið í 71 þúsund, og þá var ennþá ótalinn kostnaðurinn við tvær ferðir héðan til London til að koma henni á vélina og sækja að viku liðinni.
Það kostaði sem sagt ekki undir 80.000 krónum að koma stelpunni til Íslands. Jafnvel þó hún hefði unnið vikudvöl í íslensku sveitinni að jafnvirði 25.000 krónur þá var kostnaðurinn við farið orðinn of hár til að við teldum gerlegt að leyfa henni að fara.
-Hvað ætli kosti að koma bangsanum aftur heim til sín? -Ætli þeir sem borga undir dýrið séu með svona ferðasjóð fyrir fleiri sjaldséð dýr sem eiga ekki fyrir farinu? -Ætli Rósin geti sótt um? Hún er örugglega síst hættuminni og að minnsta kosti jafn óútreiknanleg...
En ég vona að bangsinn komist heim til sín heill á húfi. Eigi góða ferð og að aungvir Íslendingar né annað mannfólk skaðist við gerð myndarinnar um hana.
En Rósin þarf sennilega að safna svolítið lengur...
Björgunaraðgerðir undirbúnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.6.2008 | 14:36
Til hamingju Ísland - en með hvað?
-Til hamingu með Geir og Sjálfstæðisflokkin?
-Til hamingju með Sollu og Samfylkinguna?
-Til hamingju með verðbólguna og ónýtan gjaldmiðil?
-Til hamingju með fátæktina og gjaldþrotin?
-Til hamingju með þjófnað auðlindanna?
-Til hamingju með harðari glæpi og full fangelsi?
-Til hamingju með innflytjendavandann?
-Til hamingju með aukna mengun og virkjanarugl?
-Til hamingju með lélegar og rándýrar samgöngur?
-Til hamingju með dýrasta land í heimi?
TIL HAMINGJU KÆRU ÍSLENDINGAR!
Ætli endi ekki með að maður verði að flytja heim og redda þessu...
-Veit einhver um vinnu? Ýmsu vön og öllu fegin!
Forsætisráðherra bjartsýnn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.6.2008 | 03:36
Bigger - Better - Faster - More
Það var dagur hinna villtu blóma og þar með Helgudagur. Ég er voða mikið villi-allt mögulegt, þannig hefur það alltaf verið, þannig mun það alltaf verða. Aldrei verð ég villtari en þegar einhver reynir að raða mér í vasa. Þú rífur ekki upp villiblóm og ætlast til að það blómstri og ilmi afskorið, það einfaldlega visnar og deyr.
Það hefur verið mikill tætingur í mér undanfarna daga. Og öfugt við marga aðra þá finnst mér betra að leita inn á við þegar mikið gengur á. Ég finn ekki hjá mér þessa "trúnó" þörf sem mér skilst að venjulegar konur séu að springa af undir svipuðum kringumstæðum. Það hentar sumum en ekki mér. Ég hef kosið að líta á úrlausnarefni sem verkefni fremur en vandamál og þegar þessháttar vinna er í gangi þá vita kunnugir að það er ekkert persónulegt við þögnina mína.
Fólk leitar sér mismundandi leiða til að fá útrás fyrir tilfinningar sínar. Það er þær tilfinningar sem þurfa út, sumar eru fínar á sínum stað. Ég á mína uppáhalds aðferð en næst henni kemur tónlistin, í öllum þeim myndum og litum sem tilfinningar augnabliksins eru að mála þá stundina.
Núna í kvöld sótti ég í lag sem ég "átti" fyrir 14 árum og minnir mig á fjórar áttundir í tilfinningatónverknum og allt litrófið að auki í dansi hjartans milli dauða og dásemda.
http://www.youtube.com/watch?v=LiDpMfEeo3Q&feature=related (spilist eins hátt og nágrennið þolir)
Dagur hinna villtu blóma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.6.2008 | 03:54
Ofboðslega
... þykir mér gaman að rekast á gamla nemendur og fá njósnir af því hvað af þeim varð. Og ofboðslega þykir mér ennþá vænt um þau, hvert og eitt einasta!
Jón Geir var (og er pottþétt enn) alveg bráðskarpur strákur með æðislega skemmtilegan húmor. Yndislegur hrekkjalómur og grallaraspói en jafnframt rosalega skemmtilegur og alger sjarmur og átti ekki til illgirni né önnur leiðindi. Sennilega hefði ég ekki giskað á að hann yrði tónlistarmaður, en hann á nú ekki langt að sækja listamennskuna svo það hefði kannski ekki átt að koma á óvart. Þessi snillingur hefði getað orðið hvað það sem hann vildi, svo mikið er á tandurhreinu!
Svo finnst mér líka svolítið gaman til þess að hugsa að Kristján sonur minn er nú á sama eða svipuðum aldri og Jón Geir var þegar ég sá hann fyrst. Kristján er einmitt að læra á trommur og er á kafi í tónlistinni hér í Skíriskógi, var síðast í dag (ok, í gær reyndar.. orðið áliðið, eða þannig) með frábærlega vel heppnaða útitónleika í borginni með Samba bandinu sem hann er meðlimur í. Svo dúxar töffarinn minn í árgangnum sínum eins og sá ljóshærði víkingur sem hann á kyn til.. hehe *BLIKK*VARÚÐ!*MONTMAMMA Á FERÐ.
*Knús* og ég vona að þið eigið yndislegan sunnudag!
Smíðar trommusett fyrir útgáfutónleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.6.2008 | 12:08
Paraskevidekatriaphobia
Paraskevidekatriaphobia. Þessu hljómfagra nafni kallast þeir fælnipúkar sem þjást af óeðlilegri hræðslu við það þegar þrettándi dagur mánaðarins ber upp á föstudag. Þetta er áþekk fælni og Triskaidekaphobia, sem er sjúkleg hræðsla við töluna þrettán.
Þeir sem fæddir eru föstudaginn þrettánda eru meðal annarra Margaret Thatcher (13.okt."25), Fidel Castro (13.ág."26) og amerísku leikaratvílembingarnir Mary-Kate and Ashley Olsen (13.jún."86).
Ég held að ég sé blessunarlega laus við hjátrú að mestu. Mér brygði til dæmist síst meira við að sjá svartan kött hlaupa yfir götuna fyrir framan bílinn en svartan mann.
Hvað sem þið takið ykkur fyrir hendur þá farið varlega, - sérstaklega í umferðinni!
Góða helgi!
Óhappadegi fagnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |