Paraskevidekatriaphobia

Friday 13thParaskevidekatriaphobia. Þessu hljómfagra nafni kallast þeir fælnipúkar sem þjást af óeðlilegri hræðslu við það þegar þrettándi dagur mánaðarins ber upp á föstudag. Þetta er áþekk fælni og Triskaidekaphobia, sem er sjúkleg hræðsla við töluna þrettán. Crying

happy friday the 13th birthdayÞeir sem fæddir eru föstudaginn þrettánda eru meðal annarra Margaret Thatcher (13.okt."25), Fidel Castro (13.ág."26) og amerísku leikaratvílembingarnir  Mary-Kate and Ashley Olsen (13.jún."86).

 Friday 13thÉg held að ég sé blessunarlega laus við hjátrú að mestu. Mér brygði til dæmist síst meira við að sjá svartan kött hlaupa yfir götuna fyrir framan bílinn en svartan mann. Cool

Drive Safely Hvað sem þið takið ykkur fyrir hendur þá farið varlega, - sérstaklega í umferðinni!

Friday the 13th Góða helgi! Kissing 

 

 


mbl.is Óhappadegi fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þú minnir mig nú bara á þetta hjátrúargutl, hafði ekkert pælt í þessu í dag!

Enda líka um nóg annað að hugsa.

Magnús Geir Guðmundsson, 13.6.2008 kl. 12:22

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Föstudagurinn 13 er happadagurinn minn

Huld S. Ringsted, 13.6.2008 kl. 12:24

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ljúft á tungu nafnið á þessari fóbíu.

Iss svona hjátrú bítur ekki á moi þar sem ég er norn og því ónæm fyrir svona kjaftæði.  Muhahahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.6.2008 kl. 12:31

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Um hvað ertu að hugsa svona í helgarbyrjun, Magnús minn? Boltann..? Fagrar konur..?

Huld mín kæra og duglega vinkona, ég ákvað hér með að taka þig mér til fyrirmyndar með bjartsýnisviðhorfið og ákveð hér með að þetta verði hinn mesti happadagur fyrir okkur báðar! Legg ég á og mæli um...   

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 13.6.2008 kl. 12:41

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Jenný, ég rengi þig ekki með það nornin þín!   Muahahahaha

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 13.6.2008 kl. 12:44

6 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Paraskevidekatriaphobia hefur hrjáð mig um áraraðir auk Aviatophobiu, Hexakosioihexekontahexaphobiu og Enetophobiu. En annars góður

Markús frá Djúpalæk, 13.6.2008 kl. 12:47

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

my phobia Þetta GLEYM-MÉR-EI-syndróm sem þjakar leikara, söngvara, fjölmiðlafólk og bloggara... þekki það aðeins þegar ég hef ekki bloggað lengi og enginn nennir að kommenta lengur á dragúldnar og eldgamlar færslurnar... en ég hef aldrei þurft að anda í bréfpoka til að jafna mig.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 13.6.2008 kl. 13:30

8 Smámynd: Helga Dóra

Fyndin mynd þessi Friday the 13th...... Góða helgi og gleðilegan óhappadag

Helga Dóra, 13.6.2008 kl. 15:51

9 Smámynd: Linda

Helga mín, þú pælir í skemmtilegustu hlutum, ekki spurning.

Knús

Linda, 13.6.2008 kl. 16:20

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Til öryggis símaði ég á háaldraðann föður minn & varaði hann við að fara út úr húsi.  Hann á nefnilega merkisafmæli í dag, þannig að ég náði að gratjúlera & aðvara um leið.

Barn ársins, ég....

Steingrímur Helgason, 13.6.2008 kl. 21:50

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

tíhí....

"Fear og being forgotton........." það er verðugur ótti ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 13.6.2008 kl. 22:07

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ekki seinna vænna að svara þér súperljóska!

ÉG er ALLTAF með fagrar konur í huga og ekki síður bolta, eða öllu heldur BOLTANA Á ÞEIM!

Annars voru þetta einhver snemmmörgunsleiðindi, sem stundum herja á, peningar og pukur í kringum þá, en það er nú frá í bili!

Ég átti svo spes afmæli í dag, en þú gleymdir alveg að koma og kyssa mig ærlega, skjátuskömmin þín!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.6.2008 kl. 22:54

13 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2008 kl. 01:34

14 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Auðvitað slumpaðist mar í gegnum þennan föstudag eins og aðra. Þrettán er góð tala enda mánuður í minn afmælisdag sem er einmitt hinn þrettánda næsta mánaðar. Hvort þrettándi er á föstudegi eða ekki skiptir bara andskotann engu máli. - Flott uppsetning á þessu hjá þér Helga, bara bíó!!!!

Haraldur Bjarnason, 14.6.2008 kl. 09:24

15 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Ég er fæddur 13. dag mánaðar, kl. 13, og var 13 merkur.......

.........og ég er annálaður bakfallahrálkur...ég meina hrakfallabálkur..

Haraldur Davíðsson, 14.6.2008 kl. 12:32

16 Smámynd: Tiger

 Ekki óttast ég nornir og svarta ketti - ekki töluna 13 og ekki heldur hann Steina - og þá er nú mikið sagt. Ef þú verður hrædd mín elskulegasta - þá skal ég halda þér í örmum mínum þar til þú róast aftur. Líklega langt þangað til þú róast ef ég næ þér í fang mér reyndar - en það er önnur ella sko ... *púkahlátur&glott*. Knús á þig skutla.

Tiger, 14.6.2008 kl. 23:41

17 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

 im scared IM SCARED Ég er voða voða voða hrædd... Will you just hold me in your arms

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 15.6.2008 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband