Steini Mensa

Mensa OMG "Þorsteinn sagði að hvítabirnir ferðist ótrúlegar vegalengdir á hverju ári. Þeir eru harðger dýr sem geta lifað mánuðum saman án matar og éta þá gróður og þang". Clever

 omg Clever

Mensa OMG "Þessi vegalengd frá sjó og upp á hálendi Íslands er ekkert stórkostlegt þó að þetta sé langt og að það sé skrýtið að enginn hafi séð til hans ef þetta er björn," Cleversagði Þorsteinn að lokum.

omg  Clever

OMG the skyM_aðurinn

OMG the skyE_r

OMG the skyN_áttúrlega

OMG the skyS_auðheimskur

OMG the skyA_ndskoti

funny pic ... og fullkomlega óábyrg orða minna og vitaskuld ekki að tala um Þorstein Sæmundsson forstöðumann Náttúrustofu Norðurlands. Það væri því með öllu ósæmilegt ef lokað væri á tenginguna. Cool


mbl.is Hálendisbjörn er hugsanlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Yngvi Högnason

Það er nú óþarfi að strá salti í sárið, ekki réð ég því í hvaða þjóðflokk ég fæddist. En samt í lagi að minna mann á, því að með tímanum verður maður ónæmur fyrir svona gáfnaljósum. Þetta er næstum eins vitlaust og þegar fjölmiðill er á stað þar sem brennur og slökkviliðsmaðurinn segir við hann: Þegar við komum á staðinn, þá var eldur.............

Yngvi Högnason, 20.6.2008 kl. 09:08

2 Smámynd: Gunnar Ásgeir Ásgeirsson

Þessir ísbirnir þrír heita Ísak, Birna og Jökull... Ég á þá, þeir sluppu úr búrinu heima því miður.....

Gunnar Ásgeir Ásgeirsson, 20.6.2008 kl. 10:26

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég myndi sjóða mér naglasúpu.  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 21.6.2008 kl. 00:41

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Forstöðumaðurinn greindi & matvandi, greindi dýrið fyrst sem gamalt karldýr, síðan aldraða Birnu & eftir fláníngu, fermíngarztelpuhún.

Maður sér náttúrlega einhverja grazgrænku á hnjám fagmannzinnz.

Steingrímur Helgason, 21.6.2008 kl. 01:16

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ammz. Þetta var pylsa með öllu (hot dog.. doggy style).

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 21.6.2008 kl. 02:17

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

....hestar geta líka farið hratt yfir og ferðast langt.

Haraldur Bjarnason, 21.6.2008 kl. 09:34

7 Smámynd: Helga Dóra

Alltof mikil dramatík í þessu öllu saman.... Íslendingar eru soliss..... Ég er alveg drottning í þeim málum......

Ég tók þessu að mannkynið væri naut heimskt..... Líst samt betur á að það sér bara mennirnir...... En það er jú ráðfrú sem stjórnar ráðuneytinu sem átti í hlut varðandi þennan íssbjörn......  

Helga Dóra, 21.6.2008 kl. 09:42

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hvað sem þessu líður. Hann Eiríkur Stefánsson fékk ágrip af andarteppu eftir allar ástarjátningar þínar á Útvarpi Sögu Helga mín.

Þegar þar var komið Zögunni að þú sagðist elska malbikið sem hann gengi á item gömlu gúmmistígvélin hans hvarf honum allur farvi úr andliti.

Síðan hné hann með andvarpi í fang Arnþrúðar av Flatey sem nú freistar að blása í hann lífi munn við munn en habbnar allri aðstoð Ásgerðar Jónu sem ku heimta að fá að hnoðann.

Ég veit ekki um þig, en ekki spái ég vel fyrir þessu. 

Árni Gunnarsson, 21.6.2008 kl. 16:01

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú ert óborganlegur, Árni minn!  Þetta er rosaleg lýsing og ég er enn í hláturskasti... en hitt er jú hreinasatt og hárrétt að ÉG ELSKA HANN EIRÍK STEFÁNSSON og ef það væru fleiri svona menn við stjórnvölinn á þjóðarskútunni þá væri Íslandi borgið og rúmlega það! -Hvernig stendur á því að þessi skarpvitri mælskusnillingur er ekki á þingi??

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 21.6.2008 kl. 16:18

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

Auðvitað á hann að vera á Alþingi. Þó ekki væri nema bara til að fleygja þessum náttúrulausu mannleysum á dyr sem þar hafa hreiðrað um sig.

Ég get séð þetta allt fyrir mér ásamt því sem ég heyri svona innra með mér nokkrar ráðherratuðrur reka upp "kvenleg hljóð" þegar hann væri að klípa þær í rassinn.

En ekki sé ég fyrir mér að hæstvirtur forseti gengi úr stóli óstuddur að loknum hressilegum þingfundi.

Árni Gunnarsson, 21.6.2008 kl. 16:46

11 Smámynd: Linda

Góð að venju Helga mín 

knús

Linda, 21.6.2008 kl. 22:29

12 Smámynd: Runólfur Jónatan Hauksson

fín færsla Helga......

Runólfur Jónatan Hauksson, 21.6.2008 kl. 23:14

13 Smámynd: Tiger

 Ég væri sko vel til í að eiga eins og einn Hvítabjörn - flatan á stofugólfinu mínu - og með þig þar ofaná, helst Evuklædda .. grrr! Jamm, mannskepnan er skrítin...

Knús og kram á þig skottið mitt ..

Tiger, 23.6.2008 kl. 02:40

14 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Við yrðum urrandi dýrsleg, tigerluv.. ég þori varla að hugsa til þess svona nýklædd að morgni og alein heima.. arrrg! Og takk fyrir innlitið og kommentin öll hin..

.. OG SÍMTALIÐ, RÓSA SYSTIR MÍN SEM ÞORIR ALDREI AÐ KOMMENTA EN LES OG GLOTTIR!

Og þá er við komin að ÚPPS!-inu í dæminu. Hún stóra systan mín (eina systan mín) hringdi nefnilega í mig í gær úr bústaðnum sínum á sólarlandinu Íslandi. Og eftir skraf um hugsanlegan heimflutning og hefðbundið systraslúður þá sagði sú aldraða í hálf ávítandi stórusysturtón: "Agalega varstu annars vond við hann Steina okkar!". "Ha?" sagði ég, "ég hef ekki verið vond við neinn lengi! Alltof andskoti lengi raunar og alls engan Steina!", sagði ég snöggt og ákveðið en snarsetti til vara upp minn alsaklausasta svip eins og hún sæi mig gegnum símann, milli landa.

"Já, gamla leikfélagann þinn og æskuvin, hann Steina litla Sæmunds sem var heima í sveit."

Ég fölnaði. Úpps. ÚPPS!!!

Hér með tek ég alla þessa heimskulegu færslu mína hérna að ofan til baka og lofa að skammast mín voðalega. Þorsteinn Sæmundsson (Steini) var einhver allra skemmtilegasti strákpjakkur sem ég hef kynnst, við vorum nefnilega 6 ára glæpafélagar par exellence!  

Þetta var svo hryllilega skemmtilegur, bræt og frekknóttur, uppátækjasamur og æðislegur félagi að fjörutíu ár gætu ekki breytt honum í einhvern aulakálf.

Þetta hefur sko allt verið slitið úr samhengi sem eftir honum var haft og er er pottþétt bara einhverju sumarafleysingablaðabarninu að kenna!

ÞORSTEINN SÆMUNDSSON!STEINI!FYRIRGEFÐU MÉR!ÉG ELSKA ÞIG ENNÞÁ!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.6.2008 kl. 09:26

15 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég var að rétt í þessu að fá tölvupóst frá Rósu systur svohljóðandi:

"Hæ Helga!
Hver er þessi Stefán Eiríksson sem þú skrifar um í blogginu og elskar svo MIKIÐ? Reyndu að finna út hvenær hann er fæddur því ég ætla að kanna hvort hann er ekki bara frændi okkar -- (með þetta nafn). Þeir hafa margir kunnað að koma fyrir sig orði svo eftir er tekið, karlarnir út af honum Merar-Eiríki.   (Að sjálfsögðu konurnar líka ;-)
Kv. Rósa"
Það er birt hér í fullkomnu leyfisleysi  en af því að henni láðist að banna það  þá birti ég það bara að henni forspurðri. Það kennir henni kannski að kommenta bara beint hérna... annars hef ég hana nú grunaða um að hálf skammast sín fyrir sumt sem ég læt út úr mér hérna greyið..- en hún hefur nú lengri æfingu en flestir í því að umbera "ættarlúðurinn".  
En hér með lýsum við systurnar eftir nánari upplýsingum um meistara Eirík Stefánsson! 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.6.2008 kl. 09:46

16 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Helga er þetta ekki Eiríkur Stefánsson fyrrum verkalýðsleiðtogi á Fáskrúðsfirði. Hann er löngu fluttur suður á mölina og er sko örugglega ennþá með "kjaftinn fyrir neðan nefið". Hann var vanur því að láta stjórnmálamenn og aðra hafa það óþvegið, ekki síst í útvarpsviðtölum. - Nauðsynlegir svona menn til að hrista upp í hlutunum.

Haraldur Bjarnason, 25.6.2008 kl. 08:31

17 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Jú, Haraldur. Það hef ég nú sannfrétt, þá vantar mig bara fæðingadag og ár til að fletta honum upp í Íslendingabók.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.6.2008 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband