Hæg er leið til helvítis - hallar undan fæti

thamy-winehouse.jpg amy winehousee image by aleamariecleekEinu sinni var...

Amy Winehouse amy winehouse Amy Winehouse

... falleg og hæfileikarík stúlka sem varð fyrirmynd lítilla stúlkna um allann heim...

amy winehouse Amy Winehouse Amy-Winehouse-u01.jpg 345 image by Raszon amy winehouse

... en lenti í klóm eiturlyfja...

trainwreck  winehouse  Amy winehouse  Amy Winehouse 

... og varð víti til varnaðar. 

Winehouse 420 Amy Winehouse AmyWinehouse Winehouse

"I say NO NO NO..."


mbl.is Winehouse hættir við upptökur á titillagi Bond-myndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Sorglegt

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 3.5.2008 kl. 20:45

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ég tek undir NONONO ið..... en hæfileikarík er hún. Það á heldur ekki af þessarri Bond-mynd að ganga.

Markús frá Djúpalæk, 3.5.2008 kl. 20:47

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Alveg hræðilega, og það var mjög sláandi að sjá hversu hröð þróunin varð. Ég er bara ennþá hálf miður mín eftir að hafa eytt tveimur tímum í að fletta í gegnum myndir af henni til að gera þessa færslu.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 3.5.2008 kl. 20:53

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Já, þetta er ein af allra bestu og sérstökustu söngkonum sem komið hafa frá Englandi í langan tíma. Mikil synd að sjá hana sökkva svona átakanlega í þetta heldýpi.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 3.5.2008 kl. 21:00

5 Smámynd: Tiger

 Ég hef reyndar aldrei verið mikill Amy aðdáandi - en ótrúlega sorglegt er það sannarlega að fíkniefnaskrattinn skuli geta náð til sín svona mörgum viðkvæmum sálum og eyðilagt. Bara að það væri til röndótt pilla við þessu, snap og fíknin burt...

Knús á þig Helga mín og eigðu yndislegan sunnudag.

Tiger, 3.5.2008 kl. 21:58

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég sé eiginlega ekki munin.. mér finnst hún dópistaleg á báðum myndunum

Brynjar Jóhannsson, 3.5.2008 kl. 22:30

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

báðum?

Hún hefur ekkert fyrir því að syngja þessi stelpa.......... 

Hrönn Sigurðardóttir, 3.5.2008 kl. 23:13

8 Smámynd: Helga Dóra

Sorglegt....... Fíla hana alls ekki sem söngkonu, vona nú samt að henni fari að vegna betur......

Helga Dóra, 3.5.2008 kl. 23:38

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

(H.D. kíktu á síðustu færslu, komment 33 )

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 3.5.2008 kl. 23:50

10 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

úfffffffffffffffffffffffffffffff

Einar Bragi Bragason., 4.5.2008 kl. 00:43

11 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Hæg er leið til helvítis - hallar undan fæti

Má ég heyra botninn á þessari vísu

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 4.5.2008 kl. 17:18

12 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þetta er reyndar botn á gamalli vísu, en mér finnst hún betri svona  (man ekki eftir hvern):

Framsókn hefst til forsætis,
fáir sýna kæti.
Hæg er leið til Helvítis,
hallar undan fæti.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 4.5.2008 kl. 17:35

13 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

En í taumlausri púkagleði yfir að fá tækifæri til að spæla framsóknarmenn þá gleymdi ég að segja þér upprunalegu vísuna. Hún hefur verið eignuð Bólu Hjálmari og ég heyrði að hann hefði ort þetta þegar honum skrikaði fótur fyrir utan búðarholu í Hofsósi. En um bæði höfundinn og tilefnið eru ekki allir sammála og ef einhver veit betur þá væri gaman að hann/hún léti í sér heyra líka. En svona er hún: 

Oft hefur heimsins gálaust glys

gert mér ama úr kæti.

Hæg er leið til helvítis,

hallar undan fæti.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 4.5.2008 kl. 18:00

14 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Lýst vel á Framsóknarútgáfuna

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 4.5.2008 kl. 23:42

15 Smámynd: kiza

Æj, þetta er hrikalegt.  Það er ekki einu sinni komið ár síðan ég 'uppgötvaði' (ásamt restinni af heiminum, hehe) ungfrú Winehouse, fannst hún þá bara dáldið fyndin með þessu fyllerísrövli sínu og "ókvenleika", en hún hefur því miður farið alla leið á botninn, hratt  :(

Hef kíkt á nokkrar live-upptökur af tónleikum með henni og hún er ótrúlega upp og niður; eitt kvöldið í fantaformi og það næsta ónýtari en Kurt Cobain á sviði (og þá er nú mikið sagt...)

Fyrsta myndin (teiknaða) af henni þarna uppi er ótrúlega flott samt, væri alveg til í að eiga þetta sem plakat inní stofu... 

kiza, 5.5.2008 kl. 10:09

16 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Takk, jaherna, ég hef haft þessa vefsíðu í favorites frá því skömmu eftir að hún opnaði. Held ég hafi lesið þar allar vísurnar enda verið forfallinn vísna- og ljóðaunnandi eins lengi og ég man eftir mér.

Kiza, það eru skiptar skoðanir á flestu og sennilega ekki "jafn skiptar" á neinu eins og list. Þetta málverk gæfi mér hausverk.. og ég finn ekki í huganum neinn vegg á eigin heimili þar sem ég vildi sjá því bregða fyrir. Ekki einu sinni rúm sem ég vildi vita af því undir...  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 5.5.2008 kl. 23:26

17 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Mín elskulega!

Legg þetta til málana.

Ljót á tánum, laus í rás,

lifir mest til ónýtis.

Veslingurinn Winehouse,

víst á leið til helvítis!?

Magnús Geir Guðmundsson, 6.5.2008 kl. 17:51

18 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Afsakið, mér láðist í þágu hrynjanda og svo vel skildist, að skrifa nafn fraukunnar við hæfi að þessu tilefni og ekki færi ehldur á milli mála hvernig lesast ætti.

En semsagt "Vinehás" í þessu tilfelli.

Magnús Geir Guðmundsson, 6.5.2008 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband