Þaggað ofan í þeirri óþekku

Ágæti bloggari.

Vegna endurtekinna kvartana hefur verið tekið fyrir að þú
getir bloggað um fréttir á mbl.is.

Kveðja,
blog.is
------------
Svo mörg voru þau orð moggamanna.
Ég kveð hér með bloggvini mína með söknuði 
en mun vissulega fylgast með ykkur áfram! Kissing 

Sumir bókstaflega skíta peningum

Hérna er örlítið dæmi um skemmtilega húmoríska frétt um fremur óskemmtilegt mál. Fréttin hefur fyrirsögnina: Með yfir 110 þúsund krónur í endaþarmi. Og þar sem hundraðkallarnir eru ekki lengur pappírspeningar, og hann var með yfir 110 þúsund krónur í borunni, þá get ég ekki dregið aðra ályktun en þá að hann hafi verið með klink þarna uppi líka. W00t  

"Maðurinn var ákærður fyrir að stela Frelsis-símakorttum fyrir GSM-síma fyrir að andvirði 360 þúsund krónur í verslun á Sauðarárkróki en þar starfaði hann við ræstingar. Þá stal hann yfir 110 þúsund krónum í reiðufé af heimili í bænum en lögregla fann peningana í endaþarmi mannsins við líkamsleit. Maðurinn játaði brotin fyrir dómi og tekið var tillit til þess við ákvörðun refsingar."

http://www.visir.is/article/20080908/FRETTIR01/520371750

Segið svo að það sé ekki hægt að skíta peningum! Tounge

money money money


Klukk, þú ert´ann!

Markús klukkaði mig í þessum skemmtilega eltingaleik á blogginu og hér koma svörin mín:

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

* Sláturhúsvinna

* Sjómennska

* Kennsla

* Ritstörf

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

* Gaukshreiðrið

* Á hverfanda hveli

* The Green mile

* Shawshank Redemption

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

* Skagafjörður

* Ísafjörður

* Kópavogur

* England

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

* 60 minutes 

* Weakest link

* Britain´s got talent

* Dragons den

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

* Slóvenía

* Ungverjaland

* USA

* Spánn

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

* mbl.is

* visir.is

* zone.com

* youtube.com 

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

* Hvítlauksristaðir humarhalar

* Svið

* Heit lifrapylsa

* Lambakjöt, rjúpur, gæs... mmmm - þarf ég að hætta?

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

* Hundrað ára einsemd

* Fylgsnið

* Ljósið að handan

* Ljóðabækur - endalaust

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

 * Sverrir Stormsker

* Sigurður Hreiðar

* Steingrímur Helgason

* Yngvi Högnason

Kissing

 

 

 

 


mbl.is Réðust á lögreglu - fimm handteknir
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Svartnætti

Ég var að horfa á ofsalega undarlegan sjónvarpsþátt hér úti í Englandi. Þátt um Sigur Rós.

Annað hvort eru þetta ofvitar eða vanvitar.

Sennilega ekki ofvitar. -Er í tísku að koma fram fyrir Íslands hönd sem gersamlega heilalaus og næstum ótalandi á öll tungumál... þar með talið sitt eigið?

Veit það ekki. Þeir komu mér fyrir sjónir sem vanvitar. Ég vildi að ég gæti sagt hversu stolt ég væri að vera Íslendingur. Nú kjafta ég aldrei frá!


mbl.is Mikill mannfjöldi á Ljósanótt
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

4Play: Sigur Ros

Þetta er fyrirsögnin í kynningu á sjónvarpsþætti Channel4 sem sýndur verður hér í Englandi kl 1:35 í nótt. Ég held að ég verði hreinlega að horfa! Wink Grin
mbl.is Bara bull í blaðurskjóðu
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Ammæli

Besti, yndislegasti, skemmtilegasti og frábærasti vinur minn er hálfníræður í dag! InLove

best friends  Til hamingju, sæti strákur! Vildi að ég gæti djammað með ykkur þarna í kvöld - illa fjarri góðu gamni eins og oft áður... en koma tímar - koma... konur! WizardKissingWink 

Elska þig krúttið mitt! Heart


mbl.is Með 13 golfkúlur í maganum
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Fíknó fattaði og tengdó dó ekki

Fíkniefnalögregla í Brasilíu haldlagði tvo krókódíla, annan þeirra tæplega tveggja metra langan, er hún gerði húsrannsókn hjá tengdamóður fíkniefnasala. Grunur leikur á að krókódílarnir hafi verið notaðir til að pynta meðlimi annarra gengja.

Tengdamóðir fíkniefnasalans hafði ekki hugmynd um að krókódílarnir voru í húsi hennar, og var hún ekki handtekin í aðgerðum lögreglulnnar. Krókódílarnir voru fluttir í dýragarðinn í Rio de Janeiro.

Fíknó "haldlagði" króksarana áður en þeir náðu að éta tengdó - sem hafði ekki hugmynd um að hún væri kona eigi einsömul. Right.

crock Wrong. Bömmer. Þar fór gott plott í hundskjaft.  Cool

 


mbl.is Fíknefnalögregla haldlagði krókódíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

CRAFT

Breskur maður sá aldraðan föður sinn sprelllifandi í sjónvarpinu fimm árum eftir að hann hafði verið viðstaddur bálför hans.

BBC skýrir frá því að John Delaney sem þjáist af minnisleysi hafi týnst árið 2000 og að þremur árum síðar hafi fundist rotnandi lík klætt í svipuð föt og með sömu ör á líkamanum.

Ég sé fyrir mér að þetta hafi verið fremur einhliða fagnaðarfundir... Wizard


mbl.is Feðgar hittast fimm árum eftir útför föðurins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Didgeridoo dododo

Didge Leiðtogar frumbyggja í Ástralíu hafa kallað eftir því að hætt verði við útgáfu bókar þar sem stúlkum er kennt að leika á hljóðfærið didgeridoo. Stefnt er að útgáfu áströlsku útgáfu bókarinnar Daring Book for Girls í næsta mánuði. Frumbyggjaleiðtogarnir eru ósáttir við bókina vegna þess að þeir eru á þeirri skoðun að didgeridoo sé hljóðfæri karlmanna og að konur eigi ekki að leika á það.

didge-Leika á það - eða að því...? -Hvort ætli þeir óttist meira?   Cool


mbl.is Didgeridoo er ekki fyrir stelpur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djöfullinn danskur

Færeyingar fara eftir þeim lögum að kona eigi rétt á fóstureyðingu sé líf hennar í hættu, fóstrið sé alvarlega veikt eða að konan sé fórnarlamb kynferðisbrots.

Stop Abortion Þar með eru mínar ástæður til réttlætingar á fóstureyðingum upptaldar.


mbl.is Bjóða færeyskum konum aðstoð við fóstureyðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Silfurskotturnar

hand p... handknattknáu eru á heimleið. Þeim verður eðlilega fagnað eins og þjóðhetjum og ekið í opnum vagni niður Skólavörðustíginn þar sem lýðnum gefst kostur á að hylla þá með húrrahrópum og söng.

medals Engar ræður verða fluttar - enda er töluðum orðum ofaukið þegar nóg er af þeim silfruðu. Því annað silfur og auðfengnara bíður þeirra á Bessastöðum þar sem silfurrefurinn sjálfur ætlar að orða afrekið á sinn persónulega hátt. 

Iceland Flag with Arms Til hamingju með daginn!

IcelandSmá vangaveltur að lokum: "Við andlát þess er fálkaorðuna hefur hlotið ber erfingjum hans að skila orðuritara orðunni aftur". -Skila þær sér almennt aftur? -Hversu hátt er hlutfallið? -Hvað er gert við þær gömlu? -Ef "fálki" fellur frá og orðan hans skilar sér ekki, hver þarf þá að rukka aðstandendur um gripinn? -Hefur einhver neitað að skila henni? -Hvað væri gert í því tilfelli? -Eru viðurlög við því að selja hana? -En kaupa? -Hvað ef hún týnist, fær fólk þá nýja? -Er hægt að tryggja hana? -Ef svo er, fyrir hvaða fjárhæð? -Hversu margir hafa hafnað henni? -Fékk konsúllinn í Manchester fálkaorðuna fyrir að stinga upp á, og fá í gegn, að núverandi forseti Íslands væri sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Manchester University? -Ef ekki fyrir það, fyrir hvað þá? *** Bara forvitni í mér, sko. Gaman ef einhver vissi svörinCool

 Forseti Íslands sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní. Orðuþegar hvert sinn eru að jafnaði ríflega tugur. Þá sæmir forseti árlega nokkra erlenda ríkisborgara fálkaorðu. Sérstakar reglur um orðuveitingar eru í gildi milli Íslands og örfárra ríkja í Evrópu um gagnkvæmar orðuveitingar í tengslum við opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja. Samkomulag um þessar orðuveitingar er við öll Norðurlöndin, Þýskaland, Frakkland, Bretland, Ítalíu og fáein ríki önnur. Í tengslum við slíkar heimsóknir verða orðuveitingar til erlendra ríkisborgara talsvert fleiri en að ofan greinir.

Orðustigin eru nú fimm:

Fyrsta stig orðunnar er riddarakrossinn og flestir orðuþegar eru sæmdir honum. Annað stigið er stórriddarakross, síðan stórriddarakross með stjörnu og loks stórkross. Æðsta stig orðunnar er keðja ásamt stórkrossstjörnu en hana bera einungis þjóðhöfðingjar. Gefist tilefni til getur orðunefnd hækkað einstakling um orðustig.
Öllum er frjálst að tilnefna einstaklinga sem þeir telja verðuga orðuþega. Sérstök nefnd, orðunefnd, fjallar um tilnefningar til orðunnar og gerir tillögur til forseta um hverja skuli sæma henni. Nánari upplýsingar um starfsemi orðunefndar veitir orðuritari og hann veitir einnig viðtöku tillögum um orðuveitingar. Orðuritari er nú ávallt starfandi forsetaritari.
Tillögur með tilnefningum verða að berast með formlegum hætti, skriflegar og undirritaðar. Þar skal rekja æviatriði þess sem tilnefndur er og greina frá því starfi eða framlagi til samfélagsins sem talið er að sé þess eðlis að heiðra beri viðkomandi fyrir það með fálkaorðunni. Fleiri en einn geta undirritað tilnefningarbréf en aðalreglan er að undirskrift eins nægir. Orðunefnd berast á hverju ári um 80-100 tilnefningar. Við andlát þess er fálkaorðuna hefur hlotið ber erfingjum hans að skila orðuritara orðunni aftur.
 
mbl.is Eldri hetjur syngja fyrir þær nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paul Whatshisname á leið til landsins - í nótt! Jibbí, allir í Leifsstöð með fána, er það ekki?

Paul  Ramses kemur til landsins í nótt frá Mílanó. Hann hefur dvalið á Ítalíu frá því í byrjun júlí þegar Útlendingarstofnun neitaði að taka beiðni hans um hælisvist fyrir og vísaði honum til baka til Ítalíu.  Dómsmálaráðuneytið sneri við úrskurði Útlendingastofnunar á föstudag. Ósk hans um hæli verður því tekin til efnislegrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

-Hvenær má svo eiga von á því að honum verði endanlega vísað brott? -Væri ekki í lagi - og jafnvel eðlilegra að aumingjagóðir Íslendingar og útlendingasleikjur myndu hugsa fyrst um sitt eigið fólk sem ekki á fyrir salti í grautinn og er sumt hvert hreinlega sofandi undir berum himni sakir fátæktar?

Nei, auðvitað ekki. Kjánaskapur í manni að hugsa svona. Þessi gælunegri sagði varla satt orð þegar hann var inntur eftir eigin högum og laug meira að segja til um eigið nafn! Það ætti nú að falla rakleiðis í kramarhúsin hjá sumum. Það stóð ekki steinn yfir steini í frásögnum þessa "Íslandsvinar" sem í raun heitir Paul Odour Pata.

Ég vona að "efnisleg meðferð" hans verði viðeigandi og fljótafgreidd.


mbl.is Ramses kemur í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sölva Ford á Íslandi - missið ekki af þessari frábæru söngkonu

Sölva Ford 

 

Kæru bloggvinir og aðrir lesarar. Það er mér sérstök ánægja að minna ykkur á tónleika færeysku vinkonu minnar Sölvu Ford á Menningar"nótt" í dag.

Hún mun koma fram eftir opnunarræðu nýrrar borgarstýru á Óðinstorgi núna á eftir og aftur kl 3 á Kjarvalsstöðum.

Þá getur fólk séð að þarna er á ferðinni hæfileikarík ung söngkona en ekki eitthvað hankí-pankí furðudæmi frá fráfarandi borgarstjóra eins og illar tungur hafa verið svo viljugar að láta liggja að. Það er bæði leiðinlegt og andstyggilegt fyrir fjölskyldumanneskju eins og Sölvu að lenda í svona kjaftagangi sem vitaskuld var tilhæfulaus með öllu. Það að Ólafur fv borgarstjóri hafi boðið henni að koma fram á Menningarnótt bendir bara á góðan tónlistarsmekk hjá kallinum og ég fullvissa alla forvitna um að það bjó ekkert misjafnt að baki því boði.

Svo kvet ég bara fólk að vakna snemma á mánudagsmorgunn og hlusta á hana í viðtali við Markús Þórhallsson í morgunútvarpi Útvarps Sögu. Mér þykir verst að hafa misst af henni á Íslandi en ég ætla að hlusta á þau spjalla í gegnum netið.


mbl.is Björk með tónleika í Langholtskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fann apahreiður!

"Alþjóðleg skýrsla sýnir fram á að apar og apakettir í heiminum eru nú í meiri útrýmingarhættu en áður vegna veiða og minnkunar skóga", segir Morgunblaðið.

Morgunblaðið lýgur. Aparnir eru á Morgunblaðinu í fullu starfi við að ritskoða þá sem þora að segja satt. Því það er ekki bara illa séð heldur óleyfilegt á Moggablogginu.

Árni Matt, konungur apanna. Stattu nú við það sem þú hótaðir mér og andskotastu bara til að henda mér út í hafsauga eins og ég veit að þig blóðlangar til!


mbl.is Hvar eru allir aparnir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingja Ísfólksins er bráðsmitandi

Happiness Reyndar svo rosalega að eftir viku á landinu er ég orðin svo skoppandi happý að ég var farin að stinga mér kollhnýsa og valhoppa með villiblóm í fanginu og grasgrænkuna á áður óþekktum stöðum. Hjartað er orðið svo sneysafullt af hamingju að söngurinn hreinlega lúðrast sjálfkrafa upp úr manni án þess að það hafi endilega verið ætlunin og labbararnir hoppa dansspor af gáskafullri gleði og óhaminni kátínu yfir að hafa þetta yndisland undir iljum! InLove

Á morgun ætla ég til Skagafjarðar. Heart

love Fairy Love love


mbl.is Viðurkennum ekki annað en hamingju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Save Iceland from Saving Iceland

Alingishsi  The Althingi house  Ísland þarf vissulega á því að halda að því sé bjargað úr klóm þeirra óökufæru óvita sem eru að stýra því hraðbyri til helvítis, bremsulaust og í frígír. Fleiri veruleikafirrtir, glórulausir góltrantar og útlenskir költnötterar eru ekki það sem okkur vantar núna. 

Okkur vantar hugrakkt, íslenskt fólk til starfa og aðgerða. Fólk eins og Eirík Stefánsson, Höllu Rut og Magnús Þór. Já, þetta er í rauninni ekkert flókið; okkur vantar Frjálslynda flokkinn til að bjarga því sem bjargað verður. Ef landinu er á annað borð ennþá við bjargandi.


mbl.is Styðja Saving Iceland á hljóðlátan hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu lengi getur gott batnað?!

HORNY  OLD MEN Karlmenn og konur á áttræðisaldri stunda mun oftar kynlíf í dag heldur en jafnaldrar þeirra fyrir þremur til fjórum áratugum síðan, samkvæmt nýrri sænskri rannsókn".

Funny Kæra sænska rannsókn! Ertu viss..? Jafnaldrar þeirra voru á fertugs- og fimmtugsaldri fyrir þremur til fjórum áratugum síðan!?

En sé þetta rétt þá bið ég þig um skriflega staðfestingu á því. Það verður dagurinn sem ég öskra jabbadabbadú, hætti að reykja og tek upp heilbrigt líferni, gerist grænmetisæta og baka gulrótartertur! Lifi langlífið!

-Ég þarf víst ekkert að óttast, er það nokkuð?  fat chance Cool


mbl.is Meira kynlíf og oftar fullnæging
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgum íslenska karlmanninum! Frá hverju? Femínösnum - og kynlegri útrýmingu, ef þær fá einhverju ráðið!

Ég elska íslenska karlmenn. Mér finnst þeir æðislegir. Það segi ég og skrifa!

grinning cat  Kinnroða- og kaldhæðnislaust og algerlega án þess að votti fyrir skítaglottinu sem gjarnan skreytir á mér snjáldrið.

fire  Ég elska íslenska karlmenn! Og fyrir svo ótal margt. Þeir eru yfirleitt blátt áfram og blönt, kurteisir ef þeim er ekki gefið tilefni til annars, stórir, sterkir, úrræðagóðir og yndislega ofvirkir þegar á þarf að halda. Ég elska karlmennsku þeirra og frumstæðan kraftinn innra með þeim. Orkuna úr augnaráðinu - eldinn sem kveikir í mér þrána til að kasta mér á bálið og dansa logandi, óbeisluð og ástríðufull.

LOVE  Íslenskir karlmenn eru hvetjandi, hrósandi, áhugasamir og opnir fyrir nýjum hugmyndum. Þeir eru framtakssamir og frakkir; ef þeim líst vel á uppástungur þá flækja þeir ekki málin í endalausu kjaftæði um útfærslur eða sprengja héralegar úrtölubombur þar til maður er ýmist dauður úr leiðindum eða einhver annar búinn að stela glæpnum.

 I'll Protect You Always  Íslenskir karlmenn eru hugrakkir og hreinskilnir, segja það sem þeir meina og meina það sem þeir segja. Þeir eru skemmtilegir, húmorískir, kynþokkafullir, ljúfir, blíðir, verndandi, ákafir, rómantískir, einlægir og auðlesnir.

Man's warning sign Ég les karlmenn eins og spennusögu - á meðan ég er nánast ólæs á konur. En mikið er yndislegt að vera kona. Kvenleg kona. Blíð eða blúnda - elskuð eins og ég er.

i love him Íslenskir karlmenn eru einstakir. Spennandi, heillandi og búa yfir dularfullu aðdráttarafli og göldróttum náttúrukröftum. Þeir eru töframenn og töffarar. Ótrúlega sexy, sjarmerandi, smekklegir og smart. Þeir eru í sérflokki og annarra þjóða karldýr komast ekki með tærnar þar sem víkingarnir okkar hafa hælana.

Love you my prince Íslenskir karlmenn eru fallegustu karlmenn í heimi. Yfirburðirnir eru svo augljósir að samanburður við erlenda karlmenn er næstum ósanngjarn. 

prince charming  Þeir eru prinsar og hetjur. En umfram allt eru þeir tilfinningaríkar og yndislegar manneskjur sem verðskulda að vera metnir út frá eigin verðleikum, hver og einn. Elskaðir eins og þeir eru, fyrir það sem þeir eru, vegna þess sem þeir eru. Þeir verðskulda að við hvetjum þá, hrósum þeim, stöndum með þeim. Vinnum með þeim og fyrir þá, önnumst þá, hjúkrum þeim og hjálpum eftir getu okkar og aðstæðum. Kennum þeim og lærum af þeim, hlustum á þá og hlúum að velferð þeirra. Umberum þá upp að mörkum skynsemi og berum virðingu fyrir þeim meðan þeir eru virðingar verðir.

ditzy green face   Ég gæti haldið áfram að telja upp það sem við ættum að gera fyrir -við og með Wink karlmönnunum okkar íslensku þar til þið bæðust vægðar eða ég orðin græn í framan, hvort heldur kæmi á undan.

Devil Woman Sign  En rétt áður en líður yfir femínasnana, - tja eins og það gæti nú verið gaman að sjá það, sérstaklega ef þeir rækju hausinn í eitthvað nógu hart í fallinu til að vakna úr "RefsumFyrirSyndirFeðranna!"-fortíðarmartröðinni sem þeir eru fastir í, - þá bendi ég þeim á að allt þetta ofantalda gera karlmenn fyrir okkur. Og eru löngu farnir að gera. Þetta er svona; allt sem þér viljið að þeir/þær gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra-dæmi sem flestir eru farnir að tileinka sér og finnst ekkert tiltökumál. Það vita flestir - þó ekki femínasnarnir.  Og hér endar með öllu samlíking við aðrar ritningar en mínar eigin.

    Angry old woman  Það eru nefnilega þurrklofa og þurfandi, bitrar, beiskar og tussutístandi femínasnabeljur af báðum kynjum sem eru ennþá svo rígfastar í forneskjunni að þær átta sig ekki á því að það hallar ekki lengur á konur í jafnréttismálum á Íslandi, reyndar síður en svo! 

RechargableGirl  Íslenski karlmaðurinn er orðinn minnihlutahópur sem á í vök að verjast, meðal annars vegna öfugrar mismununar, eða hvað þessi bjánaregla heitir sem heimtar að ráða kvenmann í uppskipun ef valið stendur á milli karls og konu og konur væru í minnihluta á bryggjunni!  -Hvaða dauðans fábjánum dettur svona rugl í hug, hvað þá að brokka með það alla leið í lög??

- Jú, mikið rétt: Femínösnum! feminist

woman power  Það eru femínasnar sem eru að ganga að jafnrétti á Íslandi dauðu! Og láta aldeilis ekki þar við sitja heldur virðast þeir óþreytandi í hatrammri aðförinni að karlmönnum sem karlmennum. Með háði og glósum og hálfkveðnum rýtingsrímum fengu þeir því áorkað, illu heilli, að margir karlmenn hættu að þora að vera herralegir við konur. Þeir vissu ekki lengur í hvorn fótinn þeir áttu að stíga. Hafa sjálfsagt vitað sem var að þessi rætnu rímnaskáld væru í minnihluta en nú var allt orðið mögulegt hættusvæði og engum bar saman um landamæri.

feminist wedding gift   Skilaboðin voru misvísandi og allt í einu var rangt orðið rétt og rétt var allt að því glæpur. Af tvennu illu gæti karlmaðurinn metið það öruggara útspil að leika tígulgosann og taka séns á að "kunna sig ekki" heldur en vera hjartakóngurinn eins og honum var þó eðlilegt. En að verða það á að draga fram stólinn fyrir dömu sem hann býður út að borða og uppskera hýenuhlátur og spurningu hvert hann ætli með hann - um leið og hún hlammar sér hinum megin við borðið og kveikir sér í vindli... Það sem áður hefði verið afslappað og rómantískt dinnerdeit er orðið rússnesk rúlletta með djöflinum. Þökk sé femínasnafávitunum!

feminist Herramennskan, eitt það fallegasta og mest hrífandi í fari karlmanna. Það sem gerir flestum konum gleðiefni að vera dömur og fagna sínu kvenlega eðli. Sem er ekki til, samkvæmt þessum morðýtum. Og ef femínasnar fengju sínu framgengt þá yrði þess ekki langt að bíða að karlmenn yrðu orðnir eins og hálfkellingar og viðrini sem vita ekki hvort þeir eiga að fara í boxera eða blúndubrækur. Karlmenn myndu hverfa og eftir standa svona "kerlar" eða "karlíngar" sem enginn vissi hvers kyns væru og flestum væri sama.

Ladylike Enn er margt óupptalið hérna af því sem femínasnar hafa nú þegar gert okkur Íslendingum til skaða. Því auðvitað er það ekkert bara karlmennirnir okkar sem gjalda glæpanna. Það er inngrónu hatri þeirra og viðbjóði á karlmönnum að kenna að nú þora feður ekki lengur að baða börnin sín, leyfa litlu pabbastelpunum að koma í pabbaholu í knús, faðma unglingsdætur sínar eða gantast við vinkonur þeirra. Femínasnaskæruliðar eru nefnilega búnar að læða þeim grun inn hjá "grandvörum almenningi" að allir karlmenn séu mögulegir barnaperrar og níðingar sem sitji um tækifæri til að fá óeðli sínu útrás.

Pope  Jafnrétti er eitthvað sem flestum Íslendingum þykir sjálfsagt og nauðsynlegt réttlætismál. Feminismi er hins vegar að verða að þjóðfélagsmeini sem þarf að uppræta. Mistök sem þarf að leiðrétta. Það vita allir nema femínasnar með minnimáttarkennd að ekki er mælanlegur munur á vitsmunum kynjanna. Við erum hins vegar líkamlega nægilega frábrugðin til að hafa hingað til getað haft af hvort öðru gagn og gaman, svona auk alls hins. En þegar búið verður að heilanauðga konum til að skammast sín fyrir kvenleika sinn nógu lengi til að varla verður hægt að kyngreina þær frá píkulegum körlum með maskara, þá munu femínasnarnir halda sína sigurhátíð.

 ladylike Ég vil að karlmenn séu karlmannlegir, konur kvenlegar og börn hafi aðgang að atlotum feðra sinna. En kannski er það viðhorf nú þegar orðið úrelt og gamaldags.  Kannski er ég bara svona rosalega úrelt og gamaldags sjálf. Mér finnst nefnilega yndislegt að vera kona, og mér hefur aldrei fundist ég þurfa að fara úr mínum dömulega blúndubúningi til að skiljast eða vera álitin marktæk. Ég geri líka frekar ráð fyrir að einhver "vel meinandi" femínasni bendi á að orðaval mitt og pennasiðir séu nú ekki beint dömulegir. Þeir um það, ég var í rosalega sexy og dömulegum babydoll náttkjól þegar ég skrifaði þetta og fílaði mig algera blúndudúkku.  Tounge

Hin vísu lokaorð: Björgum íslenska karlmanninum! *** Björgum dömum og herrum!

tag_love10.jpg Love image by catiemouse  Elskan - þú ert namm!  fairy tale love Cool

 

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

 


mbl.is Skeggbroddar leiðin til að vinna hjarta konunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórsigur Nottingham HotButts gegn WoMan United

sexy soccer Sexy Soccer sexy Við stelpurnar í Nottingham HotButts vorum að koma úr keppnisferð til Manchester þar sem við rótburstuðum WoMan United á heimavelli. Þegar flautað var til leiksloka var staðan 8-0 fyrir okkur. Frammistaða liðsins og frábær samleikur vakti verðskuldaða athygli og íþróttafréttaljósmyndararnir fylgdu stelpunum hver fótmál mynduðu í bak og fyrir. Þeir létu sig meira að segja hafa það að elta okkur niður í búningsherbergi í hálfleik!  

sexy soccer sexy soccer girl sexy Þrátt fyrir harða baráttu WoMan kvenna þá kom í ljóst strax á fyrstu mínútum að við ofurefli var að etja og sigur okkar var sanngjarn og verðskuldaður.

 

Næsta laugardag mætum við svo Totteflott HotSpot á heimavelli. Soccer Is Sexy


mbl.is ÍA getur mætt Manchester City
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér hefur aldrei þótt ég jafn valdamikil

Stjörnuspá

FiskarFiskar: Það er ótrúlega mikið vald sem felst í viðkvæmni og varnaleysi. Það er áhrifaríkasta framkoman. Í kvöld muntu ræða um vilja þinn til að skuldbinda þig.

mbl.is Uma Thurman trúlofuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband