SJÖ MÍNÚTNA SJORTARI

"Dr. Irwin Goldstein, ritstjóri Journal of Sexual Medicine, sagði að fjögurra vikna rannsókn með þátttöku 1500 para árið 2005 hefði leitt í ljós að samfarir tóku að meðaltali 7,3 mínútur (konur voru látnar mæla þær með úri)."

Það tekur því nú varla að reima á sig reiðstígvelin ef maður er svo settur af baki rétt þegar búið er að koma sér fyrir í ístöðunum...


mbl.is Úthald ekki lykillinn að góðu kynlífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Horfðu þær á úrið allan tímann? Þennan óratíma? Stígvél?

Markús frá Djúpalæk, 4.4.2008 kl. 21:54

2 Smámynd: Yngvi Högnason

Maður verður bara lafmóður og dauðþreyttur við tilhugsunina um svona maraþonsex.

Yngvi Högnason, 4.4.2008 kl. 21:59

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Konu greyin hafa sjálfsagt gripið til þess ráðs að horfa á klukkuna og telja mínúturnar í von um að þær yrðu þá lengur að líða... Það er eina afsökunin sem ég sé fyrir þessari undarlegu tímatöku. Mér finnst þetta naumt skammtað og nískulegt. Ég verð nú bara að segja það. 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 4.4.2008 kl. 22:08

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þetta er bara hraði nútímans í hnotskurn og sinni frumstæðustu mynd. Segi ég

Markús frá Djúpalæk, 4.4.2008 kl. 22:30

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Ég verð að predika gegn þessum svokölluðum vísindum.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 4.4.2008 kl. 22:59

6 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Já, skyndibiti getur verið fínn af og til en jafnast þó ekki á við vel matreidda máltíð með tilheyrandi meðlæti.  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 4.4.2008 kl. 23:19

7 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Markús frá Djúpalæk, 5.4.2008 kl. 01:22

8 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Gerði þetta matartal þig svangann, vinur?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 5.4.2008 kl. 01:26

9 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Alveg glorhungraðan

Markús frá Djúpalæk, 5.4.2008 kl. 01:38

10 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þó þú nennir ekki að elda sjálfur... -hefurðu prófað að leggja fallega á borð og gá hvað gerist?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 5.4.2008 kl. 01:44

11 Smámynd: LKS - hvunndagshetja

Hmmm: Skyldi þetta enda með farsælu hjónabandi með meðaltalslengd máltíðar við dúkað veisluborð ...

LKS - hvunndagshetja, 5.4.2008 kl. 09:48

12 Smámynd: Steingrímur Helgason

Kví að eyða öllum þessum tíma í að svitna á sínum besta vini ?

Steingrímur Helgason, 5.4.2008 kl. 21:07

13 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Vegna þess að makar okkar myndu sennilega kalla það eitthvað annað en tímaeyðslu ef við færum að hamast á þeim næstbesta.

En Steini minn... -öllum þessum tíma? -"Minute Man"..? Nahh, ekki þú!  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 5.4.2008 kl. 21:28

14 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta með þann næstbesta er nú líklega það skársta sem Moggabloggarar hafa lagt til samfélags-og samfaramálanna frá upphafi Helga mín!!

Árni Gunnarsson, 5.4.2008 kl. 22:45

15 Smámynd: Jens Guð

  Það er bráðlæti að gagnrýna 7 mínúturnar.  Það eru þessar 0,3 umfram þær sem telja.  Það eigum við Skagfirðingar að þekkja.

Jens Guð, 6.4.2008 kl. 00:49

16 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

grrrrrrrr

Einar Bragi Bragason., 6.4.2008 kl. 01:01

17 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég las um danska rannsókn fyrir u.þ.b. tveim mánuðum síðan og þar var notast við tímavörð.

Sigurður Þórðarson, 6.4.2008 kl. 18:58

18 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Áhugavert starf það....

Markús frá Djúpalæk, 6.4.2008 kl. 19:30

19 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Takið ykkur stöðu... BYRJA! 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 6.4.2008 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband