13.11.2007 | 02:41
MIKKI OG LJÓTI REFURINN
Fallegi kisinn okkar hann Mikki dó í nótt. Kristján fann hann dauðann á litla túninu handan götunnar þegar hann var að fara í skólann í morgun. Rósa hljóp skelfingu lostin og hágrátandi og sótti hann í fanginu sínu. Við settum hann á forstofugólfið og stóðum þar yfir honum í faðmlögum þegar gömul kona bankaði uppá. Hún vildi bara segja okkur að gamall maður sem byggi við hliðina á henni hefði séð ref ná honum eldsnemma um morguninn. Hann drap hann bara. Það var ekkert blóð.
Nú er Mikki í dýrahimnaríki og leikur sér við gullfugla og silfurmýs. Kannski meira að segja silfurrefi. Það verða allir svo góðir þegar þeir deyja.
Það verður jarðarför eftir skóla í dag.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Nýjustu færslur
- Þaggað ofan í þeirri óþekku
- Sumir bókstaflega skíta peningum
- Klukk, þú ert´ann!
- Svartnætti
- 4Play: Sigur Ros
- Ammæli
- Fíknó fattaði og tengdó dó ekki
- CRAFT
- Didgeridoo dododo
- Djöfullinn danskur
- Silfurskotturnar
- Paul Whatshisname á leið til landsins - í nótt! Jibbí, allir ...
- Sölva Ford á Íslandi - missið ekki af þessari frábæru söngkonu
- Ég fann apahreiður!
- Hamingja Ísfólksins er bráðsmitandi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 170363
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2008
2007
Bloggvinir
- Steingrímur Helgason
- Tiger
- Sverrir Stormsker
- Yngvi Högnason
- Markús frá Djúpalæk
- Jakob Jörunds Jónsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Kolbrún Hilmars
- Halla Rut
- Halla Vilbergsdóttir
- Anna Einarsdóttir
- Árni Gunnarsson
- Haraldur Davíðsson
- Jens Guð
- Skattborgari
- Rannveig H
- Helga Dóra
- Einar Bragi Bragason.
- Gunnar Ásgeir Ásgeirsson
- Benedikt Halldórsson
- kiza
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Eyþór Árnason
- Ingi B. Ingason
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Inga Lára Helgadóttir
- Brynjar Jóhannsson
- Jóhann Páll Símonarson
- Jón Svavarsson
- Linda
- Hrönn Sigurðardóttir
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Ágúst Dalkvist
- Huld S. Ringsted
- Jóna Á. Gísladóttir
- Hlynur Þór Magnússon
- Grænlandsblogg Gumma Þ
- Freyr Árnason
- Gústaf Níelsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Þröstur Helgason
- Karl Gauti Hjaltason
- Óskar Helgi Helgason
- Sigurjón Sigurðsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Guðný Jóhannesdóttir
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Flower
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sævar Einarsson
- Bjarki Tryggvason
- Bergur Thorberg
- Óli Ingi
- Alfreð Símonarson
- Kristján G. Arngrímsson
- polly82
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Loopman
- Alexander Kristófer Gústafsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Einar Vignir Einarsson
- LKS - hvunndagshetja
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Heimir Tómasson
- Lovísa
- Hugrún Jónsdóttir
- Brynja skordal
- Hlynur Jón Michelsen
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Júlíus Valsson
- Handtöskuserían
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Ungar konur
- Runólfur Jónatan Hauksson
- Vefritid
- Gulli litli
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Ingunn Guðnadóttir
- Brjánn Guðjónsson
- Bjarni Harðarson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- Mál 214
- Bullukolla
- Bwahahaha...
- dittan
- ÞJÓÐARSÁLIN
Athugasemdir
Dauði dýra er oft vanmetinn og þá áhrif hans á fólk, ekki sízt smáfólk. Hluttekning mín er kannski til lítils en þjáningin er fæðingarhríð skilningsins sem er leiðin til þroska og betri vitundar, líka í barnshuganum. Vona jarðarförin hafi gengið að óskum.
Lýður Árnason, 13.11.2007 kl. 02:58
Þetta voru falleg minningarorð hjá þér Lýður og mikið sagt í knöppum texta. Má ég biðja um hlut í þessari kveðju?
Árni Gunnarsson, 13.11.2007 kl. 11:32
Æi en hvað það er sorglegt Það er svo sárt þegar dýr deyja og ekkert síður fyrir fullorðna. Dýrin eru nefnilega yfirleitt partur af fjölskyldunni og stórt skarð þegar þau eru ekki lengur til staðar. Þið eigið alla mína samúð
Flower, 13.11.2007 kl. 12:12
Takk fyrir þetta, góða fólk. Ég ætlaði nú ekki að blogga um þetta leiðindamál en lítið fólk spurði um það og fannst þetta miklu stærra mál en margt annað sem fengið hefur umfjöllun.
Við notum þetta líka til að ræða málin í rólegheitum og reyna að sætta okkur við hluti sem við skiljum ekki endilega að fullu. Lýður hittir nefnilega naglann á höfuðið, allt er þetta hluti af þroska og uppvexti, og á þeirri leið eru einstöku hjartasár óumflýjanleg.
Þá er líka mikilvægt að foreldar og annað stórt fólk sýni hluttekningu og skilning, og gefi sér tíma til að faðma, hugga og svara spurningum. Dauði heimilisdýra eru litlu fólki nefnilega ekki minna áfall en dauðsfall vinar fyrir þá eldri. En með nærgætni og virðingu er hægt að stytta sorgarferil smáfólksins, og hjartasárin gróa yfirleitt fljótt og vel á þessum aldri.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 13.11.2007 kl. 15:15
ÆÆ og æææ þetta er alltaf sárt
Einar Bragi Bragason., 13.11.2007 kl. 20:00
Já, Helga Guðrún mín, þannig er það með tilveruna, eina sem við vitum alveg fyrir víst, er að í henni er bæði upphaf og endir, líf og dauði, það er sannarlega þáttur í mótun hvers einstaklings að kynnat hvorutveggja!
Hjartans kveðjur yfir hafið!
Magnús Geir Guðmundsson, 13.11.2007 kl. 22:10
Heil og sæl Helga Guðrún.
Ég skil vel sorg ykkar þegar vinur hverfur á braut. Enn það er gott að eiga góða og trausta vini sem taka undir með þér og fjölskyldu þinni. Með guð vera með ykkur og blessa sorginni.
Jóhann Páll Símonarson.
Jóhann Páll Símonarson, 13.11.2007 kl. 22:57
Samhryggist innilega. Þessi blessuð dýr tengjast okkur oft á tíðum ótrúlega sterkum tilfinningaböndum. Ég þekki það af eigin raun.
PS. Ætli þetta hafi ekki frekar verið hundur en refur sem átti hlut að máli.
Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 23:41
Tek undir orð Magnúsar, þetta er gangur lífsins. Jarðarförin fór fram síðdegis. Enginn grátur, bara lítil kveðjubæn inní nýja heima. Við tekur daglegt líf með skóla og skyldur, leik og störf. Og svo bökum við vöfflur.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 14.11.2007 kl. 02:27
Æi þegar ég les svona þá man ég eftir mínum litlu vinum sem ég hef þurft að kveðja, það er ár síðan hann "Dakóta" minn féll frá, og ég sakna hans en þann dag í dag, en ég átti annan vin sem hjálpaði mér í gegn um þá sorg og gerir en, við erum svo heppin að eiga fjórfætlingana til þess að ganga í gegn um lífið með okkur við hlið. Knús til ykkar allra.
Linda, 14.11.2007 kl. 11:47
Ég samhryggist innilega Helga Guðrún, það er ekki langt síðan að ég missti báða kettina mína til 16 ára. Guð blessi þig og þína í þessum harmleik.
Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.11.2007 kl. 13:54
Innilegar samúðarkveðjur, til ykkar nafna mín.
Þekki af eigin raun, sem mitt fólk, hversu dapurlegt er, að þurfa að kveðja þessa vini okkar, í dýraríkinu.
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 00:18
Samhryggist þér & þínum vena, alltaf sárt að sjá á eftir svona fjölskyldumeðlimum.
S.
Steingrímur Helgason, 15.11.2007 kl. 01:38
Samhryggist. Soldið kaldhæðnislegt að heita Mikki og vera drepinn af refi
Sverrir Stormsker, 15.11.2007 kl. 23:03
Vi.fl.en.þö.þó...
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 16.11.2007 kl. 03:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.