ALDEILIS FRÁBÆRT FRAMTAK!

Mikið rosalega er ég kát með þessi kröftugu mótmæli atvinnubílstjóra!  Happy

W00t Loksins W00t tóku sig einhverjir til og gerðu eitthvað í málunum í stað þess að væla hver upp í annann og láta þar við sitja að vanda. Ég vona og held að þetta verði til þess að íslenskur almenningur finni röddina sína og sýni nú samstöðu um að hætta að láta bjóða sér hvað sem er!

Ég hlustaði á stórgott viðtal við talsmann aðgerðanna, Ágúst Fylkisson, í morgun hjá bloggvini mínum og uppáhalds útvarpsmanni, Markúsi Þ Þórhallssyni, í þættinum Rödd alþýðunnar á Útvarpi Sögu. Ég heyrði það á Ágústi að það var ekkert uppgjafarhljóð í mótmælendunum og þeir munu kalla þar til á þá verður hlustað. Frábært mál. Stoltar baráttu- og stuðningskveðjur héðan frá útlandinu!


mbl.is Mestu tafir hingað til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landfari

Já gott hjá þér að styðja þessar aðgerðir. Þú sem þarft ekki að bera kostnaðinn af því með stórfelldu vinnutapi ofan á hækkandi vöruverð.

Það finnst mörgum gaman að horfa á hanat en vilja ekki vera hanarnir sem taka þátt í slagnum.

Ég hef verið að benda á að það er einmitt ríkið sem er eini aðilinn að verði olíunnar hjá flutningabílstjórum sem hefur ekki hækkað sinn part. Allir hinir hafða það og þá er mótmælunum beint að ríkinu. Ákaflega mikil rökvísi í því eða hitt þó heldur. Þess vegna finnast mér þessar aðgerðir vanhugsaðar.

Landfari, 2.4.2008 kl. 11:14

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Takk fyrir innlitið, Landfari. Við verðum að sættast á að vera hér á öndverðum meiði. Þó þykir mér ógeðfellt að líkja þessu við misþyrmingar á dýrum og varla annað en vanhugsaður dónaskapur að ætla öðrum skemmtun af þessháttar.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 2.4.2008 kl. 13:50

3 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heil og sæl Helga.

Tek undir með þér vörubílstjórar eru frábærir og hafa staðið sig mjög vel. Það er mín skoðun að við sem erum á smábílum ættum að taka okkur saman og loka öllum bensínstöðvum vegna þess hvað bensín og olía eru í hæsta verðflokki.

Fyrir utan það gleymist olíufélöginn lækkuðu í gær verðið á bensíni í gær um heilar 25 krónur. Er þetta ekki orðið skrýtið?

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 3.4.2008 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband