Bjánar eru þetta!

-Af hverju kemur þetta fólk ekki heim aftur?

Svar: Það hefur ekki efni á farinu!  Angry

(Vísa í þarsíðustu færslu mína um flugfélögin.)


mbl.is Ekkert vit í að flytja til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: koppur

Það er ekki rétt. Það er bara auðveldara að lifa í Danmörku, þú lifir mun betur. Minna stress, minna lífsgæðakapphlaup, meiri áhersla á fjölskylduna og þar fram eftir götunum.

koppur, 7.3.2008 kl. 09:34

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Það er reyndar alveg rétt hjá þér, Ísland er að verða gósenland fyrir flesta nema Íslendinga. Ég heyri ekki í mörgum sem langar að flytja aftur heim, ég er sannarlega ekki í þeim hóp sjálf. Það þarf eitthvað mikið að breytast.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.3.2008 kl. 09:41

3 Smámynd: Sigurjón

Ég er reyndar einn af þeim sem ætla mér að flytja út frekar en að vera áfram hér...

Bezt að safna sér smá peningum fyrst.

Sigurjón, 7.3.2008 kl. 10:09

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Alveg rétt Dagný, þetta eru ótrúlegar tölur.

Sigurjón, lái þér hver sem vill. Þér er óhætt að fara að spara fyrir farinu, það tekur tíma fyrir allt venjulegt fólk.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.3.2008 kl. 10:19

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

En er þetta sama lífsbaráttan alls staðar? Spyr sá sem hvurgi hefur búið nema á skerinu bláa.

Markús frá Djúpalæk, 7.3.2008 kl. 10:48

6 Smámynd: Kári Harðarson

Sigurjón, safnaðu peningunum úti.

Þegar við fluttum til Danmerkur frá USA kostaði það sama að láta sækja gáminn, keyra með hann 6 klst til hafnarinnar og senda hann yfir Atlantshafið til Danmerkur, eins og það kostaði að  keyra með gáminn frá höfninni í Kaupmannahöfn og að nýju íbúðinni í sömu borg.

Þannig er munurinn á verðlaginu í Bandaríkjunum og Danmörku.

Kári Harðarson, 7.3.2008 kl. 11:00

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Maður finnur ekki hversu stressið og lífsgæðakapphlaupið er ofsalegt fyrr en maður er fluttur burt og búinn að kynnast krökkunum sínum í rólegheitum...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.3.2008 kl. 11:31

8 identicon

Ég bjó eitt ár í Danmörku. Ég hafð ætlað mér að vera lengur, en ég þurfti því miður að flytja aftur til Íslands. Ég er á Íslandi núna, en það er tímabundið. Ég ætla aftur út við fyrsta tækifæri. Eftir að hafa kynnst lífinu úti, þá er það besti kosturinn í mínum augum.

Dísa (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 16:37

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

Samt, sko, þó bjánalegt sé, er Ísland nú best í heimi, eiginlega fyrir þessa sveitamennsku sem að þið ~erlendis~ saknið í bloggræðu sem bloggriti...

Steingrímur Helgason, 7.3.2008 kl. 20:56

10 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég frábýð mér að nota orðið sveitamennska í þessu tilliti, og enginn skyldi voga sér að gera lítið úr störfum bændastéttarinnar í mín eyru. En það er nú allt önnur Elín, Steingrímur kær.

Það er margs sem við söknum að heiman, en það er að minnsta kosti jafn margs sem við söknum hreint ekki. Upptalningin beggja megin er allnokkur, en þegar fólk hefur kynnst hvortveggja að búa erlendis og Íslendis... og langar ekki heim, þá finnst mér það tala nokkuð skýru máli.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.3.2008 kl. 21:25

11 Smámynd: Yngvi Högnason

Ósköp er það rétt að einhvers myndi maður sakna ef að ekki byggi maður hér en eins og krakkarnir í ræðukeppninni sögðu: ef að eitthvað er betra annarsstaðar en á Íslandi, þá er Ísland ekki best í heimi og er ég þar sammála. Eftir því sem ég verð eldri, þá verð ég þreyttari á smáborgarahættinum hér og myndi flytja hið snarasta burtu ef að ég væri ekki fastur í fjötrum banka og barnatengslum.Ég á fyrir farinu.

Yngvi Högnason, 7.3.2008 kl. 22:28

12 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Ég hef verið að spá í að flytja erlendis þegar yngri strákurinn minn er búinn í námi.  Finnst orðið út í hött að búa hér.  Þetta land er bara fyrir moldríka. Svo er stór hluti þjóðarinnar sem telst til venjulega fólksins, í fjötrum vegna bankaviðskipta.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 8.3.2008 kl. 13:49

13 Smámynd: Tiger

 It's Not Fair Svo satt, allt að verða dýrara og dýrara hérna á Íslandi. Hvar endar þetta eiginlega??? Sé fyrir mér að ég verði fluttur erlendis innan fárra ára - allavega til að prufa..





Tiger, 8.3.2008 kl. 14:54

14 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Brátt veifa nýbúarnir síðasta Íslendingnum bless og spyrja: -How did you like Iceland?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 8.3.2008 kl. 15:00

15 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég hef nú búið mínu búi mörlendis sem erlendis.  Bý samt í sveit þeirri sem að Dagný þekkir mér þó uppalin betur, enda uppalin hérna í Ásholtinu í 621.

Valkostavætt val..

Steingrímur Helgason, 9.3.2008 kl. 00:23

16 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

SKO ÞAÐ ER EKKI SAMA STRESSIÐ ALLSSTAÐAR Á ÍSLANDI.....Hér á Seyðis er td fínt............Danmörk aldrei......Noregur eða Svíþjóð kannski en það er nú lámark að það séu fjöll og helst líka sjór nálægt....og gott vatn.....og ÍSLENSKAR KONUR he he

Einar Bragi Bragason., 11.3.2008 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband