GOTT

Gott að vita af þeim meðal fólks sem elskar þau og trúir á sakleysi þeirra. Það á eftir að sannast, en í millitíðinni þurfa þau á öllum þeim stuðningi að halda sem fáanlegur er. Hann fá þau nú frá þeim sem þekkja þau og vita hversu mikið þau þjást yfir dótturmissinum og hversu ólýsanlegar sálarkvalir þau líða yfir þeim hræðilegu ásökunum sem þau eru borin.
mbl.is Foreldrar Madeleine McCann komnir heim til Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

DNA úr stelpunni fannst í farangursrými bílaleigubílsins.

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.9.2007 kl. 21:56

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Það er komið fram að það eru ekki nema helmingslíkur á að það sé úr henni. Sem þýðir jafnframt að það eru helmingslíkur á að það sé ekki úr henni.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.9.2007 kl. 08:50

3 identicon

Reyndar komnar einhverjar nýjar heimildir sem segja ekki aðeins að það sé um 99% öruggt að blóðið sé úr Madelaine heldur einnig að rannsóknir á sýninu hafi farið fram í Birmingham á Englandi sem verður að teljast öllu meira sannfærandi en rannsóknarstofa í Portúgal.

Þarf reyndar ekki að vera að þær heimildir sem ég vitna í séu eitthvað áreiðanlegri en þær sem tala um 50% líkur.  Finnst sú tala reyndar furðuleg í ljósi þess að systkinin eru þrjú sem gæfu okkur 33,3% líkur ef blóðið getur verið úr einhverju einu þeirra.

Þetta kemur sjálfagt allt í ljós á næstunni fyrst lögreglan er að gefa afhenda saksóknara gögn sín í málinu í dag.

Hrafn (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 10:16

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þetta mál hefur tekið á sig furðulegustu myndir. En þetta dularfulla blóð á að hafa fundist undir niðurlímdu áklæði í skotti bílsins, svo varla koma tvíburarnir til greina.

Já, þetta kemur vonandi allt í ljós. Ég er bara því miður að verða vondauf um að þeir finni þann eða þá sem eru valdir að hvarfi stúlkunnar. Óleyst barnsránsmál er gríðarleg hneysa fyrir lögregluna og rannsóknaraðila á staðnum, og í þessu tilfelli voru þeir undir mikilli pressu. Sem betur fer þarf að sanna sekt svo óyggjandi sé í svona málum. En á meðan þjást þeir saklausu sem liggja undir skelfilegum grun. Þetta er sóðamál.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.9.2007 kl. 11:29

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og furðulegasta bull er skrifað hérna hjá þér, skorinorða smákkonan mín!

Hvað sem svo annars er hægt að segja um þig, þá ertu að sönnu staðföst í trúnni! Það er oftast til heilla og vona ég sannarlega að svo verði nú!

Bestu kveðjur yfir hafið "Drottning í uppnámi"! (sem er svo sannarlega ekki alveg út í bláin hérna á síðunni þessa dagana!)

Magnús Geir Guðmundsson, 11.9.2007 kl. 15:58

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, þetta átti auðvitað að vera "Skákkonan"

Magnús Geir Guðmundsson, 11.9.2007 kl. 16:00

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Smákakan hefði verið betri.

Já, ég er fullviss um sakleysi þeirra. Algerlega og 100% Og það án þess að hafa sjálf haft eitthvað með málið að gera, eins og rugludollan dylgjaði með í kommenti við síðustu færslu.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.9.2007 kl. 16:45

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ertu að gefa í skyn að þú sért "Smásæt"? haha! En nú veit ég ekki, nema að vera fullviss um að þú ert sæt á alla kanta!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.9.2007 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband