Hún er fundin!

Síðasta íslenska beinakellingin er komin í leitirnar í Kjósinni, þar sem hún hafði borið beinaber beinin. Hún var flutt beina leið á Lansann þar sem skorðið verður úr um það hvort hún hafi verið komin í beinan kvenlegg frá fyrstu íslensku ellikellingunni.

...en nú er íslenska bullukellingin í Englandi að hoppa út í bíl með sínu fólki og bruna upp til Skotlands, þar sem við ætlum að skottast  fram á föstudag. Smile


mbl.is Mannabein fundust á víðavangi í Kjósarhreppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Finnst þér þetta fyndið?

 Nei ég bara spyr?

Ef þetta er nú manneskja, og þó svo að þetta sé af dýri, þá finnst mér þetta nú meira en óviðeigandi.

Kíktu nú aðeins inná við og athugaðu hvort það sé ekki allt í lagi hjá þér. 

Dísa (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 10:59

2 identicon

fullorðin kona að tala svona.... mér blöskrar

Íris (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 11:02

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 24.3.2008 kl. 11:10

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Beinafundi byrjar ekki dár og spé. Um slíkt skall fjalla af grátklökkvandi alvöru.

Jóhannes Ragnarsson, 24.3.2008 kl. 11:12

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Húmorsleysið er beinlínis grátlegt.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 24.3.2008 kl. 11:26

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Voðaleg leiðindi eru þetta í ykkur. Talandi um hvort ekki sé allt í lagi einhversstaðar..hmmm

Gunnar Th. Gunnarsson, 24.3.2008 kl. 11:29

7 identicon

Nei...

Þú ert grátleg að lifa svo innantómu lífi að þurfa að nota andlát annarra sem húmor.

Ég tala stundum við vini mína og segi sem svo, "hvað er komið fyrir íslendinum". Og finnst siðleysið og sálleysið algjört.

Þú veist ekki hvaðan þessi bein komu, þú veist ekki að þetta gæti verið, systir, frænka, móðir, jafnvel mín eða þín?

Finnst samt ágætt að vita til þess að jafnvel séu þessir siðlausu að fara úr landi, og eru þá jafnvel best geymdir í skotlandi eins og þú!

Dísa (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 11:34

8 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Það er talið að þessi bein séu af konu, og að þau hafi legið þarna að minnsta kosti 10-30 ár. Mér finnst nú sárasaklaust að kersknast aðeins með þetta, það hafa íslendingar gert í gegnum aldirnar og ekkert verið taldir verra fólk fyrir vikið. 

Markús frá Djúpalæk, 24.3.2008 kl. 12:29

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég er farin út að leika mér með leggina mína og skeljarnar. Við skulum vona "dísu" vegna að það séu ekki lærleggir og hnéskeljar...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 24.3.2008 kl. 12:42

10 identicon

æ hvað það er nú gott að vita að þú berð enga virðingu fyrir jarðneskjum leifum annarra, fínt væri að hoppa og hía á gröf móður þinnar, þetta er nú allt í glensi hvort sem er

 hvort sem þetta sé úr kirkjugarði þarna nálægt eða hvort þarna séu komin fram bein konu sem hvarf þá finnst mér vitsmunafarið hjá þér vera sambærilegt cro-magnon. Gleymist hratt að hér hafa allmörg mannshvörf orðið, en í rauninni skiptir það ekki máli. þú ert greinilega týpan sem hrækir á gröf annarra því það hefur þú gert hér. 

Íris (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 13:05

11 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Helga Guðrún er semsagt orðin Cro-Magnon-rasisti!

Markús frá Djúpalæk, 24.3.2008 kl. 13:31

12 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Neanderdalsmenn höfðu mikla samkennd og virðast hafa hugsað um hina veiku og öldruðu. Greftrunarsiðir þeirra benda og til átrúnaðar á annað líf. Cro Magnon maðurinn kom til Evrópu fyrir 40-45 þúsund árum og var á sömu svæðum og Neanderdalsmaðurinn. Cro Magnon voru of fámennir til að geta útrýmt Neanderdalsmanninum, en þeir hafa eflaust haft áhrif á útrýmingu þeirra. Kannski komin tenging hér

Markús frá Djúpalæk, 24.3.2008 kl. 13:37

13 identicon

Ég hef alveg húmor fyrir svona... en mér fannst þetta bara ekkert fyndið...

Andri (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 16:06

14 Smámynd: Yngvi Högnason

Það er nú alveg skefilegt að sjá hversu óvirðulega þú skrifar um öskubakka. En, endilega meira svo að bónusheilarnir geti hneykslast.

Yngvi Högnason, 24.3.2008 kl. 20:20

15 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Hvaða, hvaða, hvaða ???

Ég hef nú séð færslur sem eru mun meira sjokkerandi en þetta blogg ?

Er þetta eitthvað persónulegt með þessa andúð ?

Lárus Gabríel Guðmundsson, 24.3.2008 kl. 21:44

16 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Já Lárus, það er það, nafnlausu athugasemdirnar hér að ofan komu allar úr sömu tölvunni, verst hvað hún er óákveðin með hvað hún vill heita. En mér fannst karlmannsnafnið sem hún notaði fara best við útlitið á henni.  Stundum kemur sér vel að eiga tölvumenntaðan mann.  

En málfrelsið er okkur mikilvægt og ég blokkera helst ekki fólk, þótt því sé illa við mig.  

Annars erum við nú komin á fallegt hótel í Glasgowborg og erum í himnasælu með lífið og tilveruna. Það muggaði á okkur þegar við renndum inn í skoska landhelgi og það fannst okkur  heimilislegt. Skotar eru líka skemmtilegt fólk; miklir sagnamenn, glaðlyndir, jákvæðir og syngja saman. Það þykir minni nú ekki leiðinlegt!

Vink að sinni frá herbergi 328 Erskine Bridge Hotel.  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 24.3.2008 kl. 23:10

17 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Yngvi: Það virðist ómögulegt að gera þessu bindindisliði til geðs; fyrst vælir það árum saman sömu þurrkuntuþuluna um að fólk eigi að "drepa í sígarettunni". Svo þegar einhver gefst upp og gegnir því, þá verður allt vitlaust yfir hvar það var gert!

Vanþakkláta pakk.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.3.2008 kl. 02:48

18 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Er enginn húmor hér hvað er þetta .....mér finnst nú alveg í lagi að grínast aðeins með þetta

Einar Bragi Bragason., 25.3.2008 kl. 18:02

19 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Húmor er hryllingur

Markús frá Djúpalæk, 25.3.2008 kl. 18:12

20 Smámynd: Steingrímur Helgason

Það er alltaf sama sagan með þig Helga mín.

Þú ferð alltaf að 'skokkera' bjánana & ég hlæ lángmest & hæst af því að ég er vitlausari en þeir í því að skilja á minn hátt eitt grin um einn öskubakka til eða frá.

'Bite an haggiz 4 mí girlí' ..

Steingrímur Helgason, 27.3.2008 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband