NONNI HÁLFNÍRÆÐUR

Litli bróðir minn á afmæli í dag. Ótrúlegt að hann Nonni litli sé orðinn 45 ára! Þessi agnarlitli glókollur sem kallaði mig Höku. En hann stækkaði fljótlega nægilega mikið til að ná mér í hæð og vel það, þótt hann yrði aldrei mjög hávaxinn kallanginn, frekar en aðrir karldvergar í föðurfjölskyldunni. Wink

En í dag náði hann mér í árafjölda. Ég verð ekki 46 nærri strax! Cool

Jújú, við erum alsystkin og allt, - en í gamla daga þýddi "faðirinn var viðstaddur fæðinguna" eitthvað allt annað en það sem við þekkjum í dag... Tounge

Til hamingju með daginn, elsku Nonni okkar!

Ástarkveðjur og knús frá okkur öllum Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Gratjú með brósann þinn vena & gaman að þú sérð borðandi.

Ég meina náttúrlega lyklaborðandi.

Steingrímur Helgason, 6.2.2008 kl. 01:36

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hehe, Steingrímur léttur á því! En já til hamingju með strákin og haha, skemmtilega skilgreiningu á viðveru feðra fyrr og nú!

Kær kveðja til Notts!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.2.2008 kl. 21:59

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég held að við af minni kynslóð höfum nú flestir látið nægja að vera viðstaddir getnaðinn.

En ég geri ekki lítið úr hinum þættinum og held reyndar að þar hafi orðið áhugaverð bylting.

Árni Gunnarsson, 6.2.2008 kl. 23:46

4 identicon

Hálfníræður maður er 85 ára. Nonni er 45 ára og þá er hann hálffimmtugur.

Guðrún (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 20:30

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

SVonasvona Guðrún,þetta veit Helga Guðrún enda gáfuð og góð stúlka, en svona taka menn oft til orða í gamni.

Upp með húmorinn!

Magnús Geir Guðmundsson, 10.2.2008 kl. 01:13

6 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

"You took the word right out of my mouth" - Meat Loaf

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 10.2.2008 kl. 03:44

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hehe, þú kannt bara fína ensku elsku stelpan, vissi það ekki!

En hérna kemur einn "Gullhamar"!

Heillaður er herran ég,

hrikalega já af þér.

Ofurgáfuð, girnileg,

gætir "húkkað" hvern sem er!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.2.2008 kl. 21:40

8 Smámynd: GústaSig

Hmmm já já ok ;)
Afmælis kveðjur á Nonna litla sem er orðinn oggu lítið stærri núna en var þegar ég hitti orminn fyrst... fermingarárið ógurlega hjá misvilltum systkynum thí hí.

 kveðja
ÁS

GústaSig, 17.2.2008 kl. 08:05

9 identicon

Sæl frænka! Ég hjó eftir orðum þínum varðandi karldverga í ættinni, þar sem ég er nú einn slíkur! Get samt ekki sagt mikið þar sem Nonni er sennilega sentimetra hærri en ég...

Eiríkur V. (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 14:21

10 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Já, Eiki minn, en þið hafið nú allir margsannað að margur er knár þótt hann sé smár!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 20.2.2008 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband