AMERÍSKT HUGVIT

Ef vinir þeirra og fjölskylda voru nógu vitlaus til að trúa þessum framtíðar-hrylli, þá áttu þau það skilið að tapa peningunum. LoL
mbl.is Fangelsuð fyrir að féfletta ættingjana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Yngvi Högnason

Jamm og nú hneykslast allir íslendingarnir, sem að kaupa keðjubréf og hlut í pýramídafyrirtækjum, á vitlausum ameríkönum.
 Mér finnst nú bekkmyndin betri.

Yngvi Högnason, 6.12.2007 kl. 13:13

2 Smámynd: Linda

"heimskur er eins og heimskur gerir" Forrest Gumb

Linda, 6.12.2007 kl. 13:20

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Því miður er þetta alheims vandamál.

Í nánast hverri einustu íslenskri stórfjölskyldu eru dæmi um að einhver svartur sauður hefur fengið uppáskrift fyrir láni eða ábyrgð í banka. Bankarnir eru þekktir fyrir að fara stystu leiðina að peningunum. Ef innheimtumenn bankanna vita um að amma skuldarans eigi eignir, þá eru þeir furðu fljótir að þefa slíkt uppi.

Fyrir um 15 árum dæmdi héraðsdómari í skuldamáli með mikilli hjartagæsku. Sá sem hafði fengið bankalánið reyndist gjaldþrota. Bankinn beindi innheimtu sinni að ömmu viðkomandi sem hafði séð aumur á barnabarni sínu og skrifað undir skjal sem fól í sér sjálfsskuldarábyrgð, þ.e. eins og hún væri raunverulegur skuldari. Þrátt fyrir að ljóst væri að lagalega séð væri blessuð konan ábyrg f.h. barnabarnsins, sýknaði héraðsdómarinn gömlu konuna og var dómurinn rökstuddur að þetta væri siðferðislega rangt. Bankarnir fóru hamförum og vonandi hafa þeir gætt sín betur eftir þetta.

Traust er yfirleitt mjög mikið meðal ættingja sem vilja gjarnan styðja hvern annan. En þegar á bjátar þá getur traustið og trúnaðurinn orðið skyndilega einskis virði.

Þessi mál eru ætíð mjög viðkvæm eins og rétt er unnt að ímynda sér. Því leggur Mosi til að fordæma ekki þá sem með góðsemi sinni vilja aðstoða, en sjálfir skúrkarnir mega sitja uppi með skömmina og sömuleiðis bankarnir þegar þeir sýna af sér vítavert kæruleysi aðlána lítt skilríku fólki fé.

Mosi 

Guðjón Sigþór Jensson, 9.12.2007 kl. 13:59

4 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Gleðileg jól og takk fyrir skemmtilegt bloggár :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.12.2007 kl. 01:03

5 Smámynd: Bjarki Tryggvason

Gleðileg jól kæra Helga Guð blessi þig á nýju ári!

Bjarki Tryggvason, 22.12.2007 kl. 18:16

6 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Jólaknús og kveðjur til þín  3D Santa 





Margrét St Hafsteinsdóttir, 22.12.2007 kl. 19:57

7 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Helga Guðrún

Gleðileg jól megi guð og gæfa vera með þér og fjölskyldu þinni.

Jólakveðja.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 24.12.2007 kl. 15:55

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Gleðileg jól glæsiskutla!

Hvar hefur þú annars verið að fela þig, saknaði þín sárt!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.12.2007 kl. 11:14

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Gleðilegt ár kæra Helga Guðrún ! Og takk fyrir yndisleg viðkynni á árinu!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 31.12.2007 kl. 01:22

10 identicon

Sæl frænka góð og gleðilegt nýtt ár! Vonandi að maður hitti þig nú eitthvað á þessu ári  bið kærlega að heilsa frændsystkinum mínum og manni þínum, væri svo ægilega mikið til að þú færir að blogga aftur!  

Valgerður Guðrún (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 13:43

11 identicon

Heil og sæl, Nafna og gleðilegt ár - með þökk fyrir það liðna !

Hlakka til; næstu færzlu þinnar, með hækkandi sól.

Haf þú, sem allt þitt fólk það, sem allra bezt.

Mbk., sem fyrr / Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband