EIGUM VIÐ AÐ SJÓÐA OKKUR SKYR Í KVÖLD, HEILLIN?

 "Það kann að koma sumum á óvart, en það var ekki stór ákvörðun fyrir ungan hagfræðing í fjármálahverfinu hjá Wall Street, Sigurð Hilmarsson, að venda kvæði sínu í kross, byrja að flóa skyr og framleiða það ofan í New York-búa."

-Síðan hvenær hefur skyr verið flóað? -Þ.e. soðið? -Hvaða rugl er hérna í gangi? -Er ég bara búin að vera of lengi í útlöndum? Ég skil ekki svona málfar.


mbl.is Sagði skilið við fjármálahverfið og hóf framleiðslu á skyri í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki átt við að mjólkin er hituð/flóuð fyrst, áður en hleypirinn er settur saman við?

kv.

nöldrari (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 14:21

2 identicon

Í fréttinni er talað berum orðum um að flóa skyr ...

Gaman væri að fá útskýringu á þessari aðferð við skyrgerð ...

H. Magnússon (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 14:36

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þetta er einfaldlega bull og svo bara fyndið að tengja þetta við áhuga hans á matreiðslu!

En auðvitað hefur þú verið allt of lengi fjarri góða Helga guðrún, Glæsileika Íslands sett niður þess vegna að mér skilst!

Magnús Geir Guðmundsson, 18.11.2007 kl. 15:59

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.11.2007 kl. 16:16

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ekki alveg rétt heldur. Það er undanrennan sem hituð upp að suðumarki og látin kólna ofan í 40 gráður áður en skyrþéttir og ostahleypir eru settir saman við.

En það er gaman að sjá þetta fyrir sér: "-Viltu lækka undir skyrinu, elskan!"

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.11.2007 kl. 17:18

6 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Well, most things do... so, who knows!

Ok, kannski ekki skyr. Ferlegt törnoff eiginlega.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.11.2007 kl. 23:54

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Varstu nokkuð í sveit í Vallanesi? Mamma mín framdi einhvern tíma þennann viðbjóð og bar á borð fyrir mig og önnur fórnarlömb. Ég kenni henni ennþá um skipbrot æskuáranna og það er sko ekki brennsa eða sígó að kenna ónei.. hræringurinn óbjóðslegi er örlagavaldur í þeim dramadansi. Og svo kom súrmjólkin.... -er nema von að við höfum orðið ýmist alkar eða blaðamenn? Stundum even bæði..

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.11.2007 kl. 00:34

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ja nú þykir mér skyrinu slett!

 Ekki get ég orða bundist þegar skyrhræringnum eru sendar þvílíkar kveðjur sem hér. Þetta er mesti herramannsmatur og ætti að vera hafður í forrétt í öllum viðhafnarveislum. Veit ekki annað en að í brúðkaupi aldarinnar sem framið var seint í gær hafi skyrhræringur verið uppistaðan í veisluföngunum ásamt með súrum blóðmör og hrútspungum. Urðu þar margir hrærðir og viknuðu eins og til var ætlast.

Hann Guðmundur Árnason langafabróðir minn sem um langt skeið ferðaðist um sveitir sem erindreki menningarinnar á Íslandi og nefndur var Gvendur dúllari hafði mjög afdráttarlausar skoðanir á þessum þjóðarrétti okkar. Því til sönnunar var eftir honum höfð svohljóðandi ályktun:

"Hún fóstra mín hafði ekki nema einn galla, en hann var líka stór. Og það var að hún setti ævinlega grautinn út í skyrið í staðinn fyrir að setja skyrið út í grautinn!"

Og það er ég meira en sannfærður um að þessi grátlega reynsla ykkar af skyrhræringnum á rætur sínar að rekja til mistaka af þessum toga.

Svona getur nú fljótfærni sem að lítt ígrunduðu máli sýnist ekki stórvægileg, haft hrikalegar og óbætanlegar afleiðingar. 

Árni Gunnarsson, 19.11.2007 kl. 01:01

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég átti afskaplega góða foreldra og hefði átt fína æsku ef ég hefði ekki átt eldri bróður. Hann hafði ekki sama skilning á heiminum og við hin. Eða hafi hann haft það, þá deildi hann því ekki með hinum.. . En við lifðum það öll af og hann líka. Merkilegt.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.11.2007 kl. 01:12

10 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú ert sko hetja í lifanda lífi. Lifðir af barnæskuna blindfullur og í beinu framhaldi 16 ár án hvítvínsins og brennsans. Það kallar á veisluhöld og skál...dskap.. djö hvað mar er klár að bjarga sér sko..  .. - en að þú hafir lifað af 4!! (segi og skrifa: FJÓRA) bræður, það kallar á riddarakrossinn!

En þar sem ég hef aldrei komist nær honum en að leika hin hlutverkin, s.s. hrókur alls fagnaðar, óbarinn biskup, algert peð, drottning drauma minna (Einar), kóngur í ríki þínu (Einar líka..) þá ætla ég að skottast út af skákborðinu og óska þér til hamingju með að vera á lífi.. og að því er virðist, tiltölulega óbrjálaður.

Húrra fyrir þér!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.11.2007 kl. 04:17

11 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Árni minn, veistu að það er nákvæmlega sama hvernig þessu baneitraða bjakki var sullað saman, þetta var alltaf sami óbjóðurinn.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.11.2007 kl. 04:26

12 Smámynd: Linda

nú veit ég  loksins hvað hefur verið að hrjá mig, skyrhræringur úr æsku  bragðlaukarnir skreppa saman af hryllingi við þessa minningu.

Linda, 19.11.2007 kl. 09:38

13 Smámynd: Flower

Kannski á ég geðheilbrigði mitt því að þakka að skyrhræra var ekki á boðstólum þegar ég var lítil, nema pabbi fær sér stöku sinnum af því að honum finnst þetta gott Hafragrautur er hins vegar sælgæti og ég tala nú ekki um með sneið af nýjum blóðmör, hollt og þjóðlegt.

Flower, 19.11.2007 kl. 14:34

14 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Sammála Blóminu fallega.  Ég ólst upp við hafragraut, slátur og lýsi á hverjum morgni og ískalt mjólkurglas á eftir. Mmmm, í þá gömlu, góðu daga þegar maður gat bara sest að hlöðnu matborði, guð má vita hversu oft á dag, og þurfti ekkert að hafa fyrir því sjálfur. Og svo í miðdagskaffinu þegar borðið svignaði undan stórum bökkum af smurðu brauði og heimabökuðm kökum í miklu úrvali.

Það skal nú reyndar viðurkennast að ég á alveg sérstaklega duglega og myndarlega mömmu. Vildi að ég hefði tærnar þar sem hún hefur hælana, þá væri ég sko flott. En nú er ég farin að skammast mín og ákveð hér með að bæta fjölskyldunni upp letiganginn og taka á móti þeim með heitu kakói og vöfflum þegar þau koma heim úr skóla og vinnu á eftir.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.11.2007 kl. 15:31

15 Smámynd: Linda

Þessi færsla þín er komin út í snilld og kímni sem gaman er af að lesa, þó verð ég bara að vera óssamála með hafragraut og slátur, hjálpi mér, ég er svo mikil íslands svikari að hálfu væri nóg tíhí. 

Linda, 19.11.2007 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband