NAGLINN HITTUR Á HÖFUÐIÐ

Hér útskýrir Muhammed Abdel-Al Kóraninn þeirra múhameðstrúarmanna í stuttu máli. Þær sviðskosssystur Madonna og Britney eru þarna samnefnarar allra þeirra sem ekki eru múslimar. Þetta er dagskipunin í hnotskurn.

PS. -  Ég vil minna fólk á að taka þátt í skoðanakönnuninni.


mbl.is Hótar að hálshöggva Britney og Madonnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl, Helga Guðrún og þökk fyrir allt gamalt og gott !

Í hnotskurn; hvers lags fár, við er að eiga. Vesturlandabúar, sem og Austurlanda; hljóta að grípa til þeirra ráðstafana, sem duga til; að lækka risið á þessu illa fyrirkomna fólki; hvað iðkar bábiljuna, frá Mekku og nágranna plássum hennar.

Það er með ólíkindum, á þeim upplýsingar tímum, sem við upplifum, eða ættu að vera í örri gerjun; að svona heimska, hver á ekki sinn líka, í sögunni; sennilega frá því fyrir steinöld; jafnvel fyrr, skuli vaða uppi, í nútímanum. Og eiga sér talsmenn;; meira að segja, hér heima á gömlu Ísafoldu, sérstaklega meðal vinstri manna og kaffihúsaspekinga ýmissa; oftast hrekklausra og vel meinandi, en svo er nú samt komið; að nokkru. 

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 22:52

2 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Þetta er með ólíkindum.  Er ekki hægt að kæra hann fyrir morðhótun og setja á hann nálgunarbann?  Á meðan íslamstrúarmenn boða að grýta eigi konur sem sýna líkama sinn, þá sagði Jesú: "sá yðar sem syndlaus er, kastið fyrsta steininum." Ótrúlega mikil kvenfyrirlitning í íslam.

Bryndís Böðvarsdóttir, 13.9.2007 kl. 23:08

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er skot yfir markið og ekki til þess fallið að afla þeim fylgis, eða vinsælda. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.9.2007 kl. 23:27

4 Smámynd: Linda

Það eru innihalds meiri grein um þetta mál á worlnetdaily.com auk viðtal í útvarpi. Mbl stiklar á stóru í þessu tilfelli.  Annað hvort mun fólk átta sig á alvarleika málsins eða ekki, fólk annað  hvort er á móti öfga Íslam eða kaupir undir þá bleyjur til þess að skíta í  ef ég þarf að útskýra eitthvað frekar hvað ég átti við með þessu síðasta þá ertu (ekki þú Helga mín) í þeim hópi. 

Linda, 14.9.2007 kl. 03:59

5 Smámynd: Linda

Heyrðu svo var ég með þessa grein uppi á öðrum skjám, skelli hlekknum inn hér.

Linda, 14.9.2007 kl. 04:07

6 identicon

Reyndar brýtur þetta í bága við eina stærstu reglu Kóransins, að dæma ekki aðra, Guð einn hafi rétt til þess. Dettur strax í hug nokkrir ofsatrúar(kristnir)menn sem draga Biblíuna úr samhengi og segja hina og þessa réttdræpa. Ef þú þekkir einhverja múslima myndi ég spyrja þá hvað þeim finnst um þessa frétt, efast um þeir yrðu minna hneykslaðir en þú. Ég varð allavega mjög hneyksluð þegar "trúarleiðtogi" kristinna manna sagði hina og þessa réttdræpa og vitnaði í mín trúarbrögð. Pössum okkur á alhæfingum

Jóna (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 06:27

7 identicon

Ég tel að Vesturlönd verði að vera mun betur vakandi varðandi þessa ögfahyggju sem kemur fram í skoðunum erki-klerkana sem reyndar margir "hófsamir" múslimar skilja eða taka undir. Það tók vestræn menningarsamfélög margar aldir að ná því lýðréttindum og einstaklingsfrelsi sem við höfum í dag. Og jafnvel þó svo við erum ekki alltaf sammála birtingarmynd þess frelsis, þá er þetta fólk (t.a.m. Britney og Madonna) að gera þetta sem frjálst og fullveðja fólk. Í þessu liggur reginmunur milli vestrænna samfélaga og margra íslamskra ríkja.

Þess vegna skulum við ekki fórna þessum réttindum á altari svokallaðs umburðarlyndis gagnvart annarri menningu og trúarbrögðum. Eiginlega skiptir engu máli hvað Kóraninn segir um þetta. Það sem skiptir máli er þessi ögfahyggja og mikill skortur á umburðarlyndi og einstaklingsréttindum sem fram kemur í skoðunum margra múslima. Þetta er þeirra menning segja sumir, þar sem m.a. heiður ættarinnar er oft meiri en réttur einstaklingsins. En þannig er það bara ekki hjá okkur og við skulum aldrei gefa neinn afslátt á því. Ekki fyrir neina trú eða menningu.

Í þessu ljósi finnst mér svo skondið að sjá það að fólk bendir á kristna trúarleiðtoga. Það getur verið að þeir segja hitt og þetta en fólk á Vesturlöndum telur þá alla jafna ruglaða. Þannig er því ekki farið með múslimaklerkana því þeir eru fyrirmyndir heilu samfélaganna. Það er reyndar ótrúlegt að sumar konur og vinstrisinnaður einstaklingar á Vesturlöndum hafa samúð með málstað öfga-múslimanna og benda á að það er ekki allt gott í kristni heldur. T.d. mjög sérstakt að sumir femínistar hafa samúð og skilning á þessu!!  Hvers vegna, er mér hulin ráðgáta. 

Ég spyr að lokum, væri þetta fólk tilbúið að búa og ala sínar dætur upp í Saudi-Arabíu?  Er þetta fólk sammála nauðungarhjónaböndum og að konan skuli hylja sinn líkama að kröfu eiginmanna? Skýrt afdráttarlaust svar óskast.

Gísli Tryggvason (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 11:39

8 identicon

Vel orðað hjá þér þetta Linda: ,, kaupir undir þá bleyjur til að skíta í ". Það eru alltof margir hér tilbúnir til að moka upp skít eftir múslima ( fólk mætti vera duglegra við að verka upp skítinn eftir hundana sína ) og þér Jóna get ég sagt að ég þekki nokkra múslima hér á landi og þeim finnst svona róttækni sem við köllum öfgar, bara vera helvíti flott og réttlætanleg.

Stefán

Stefán (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 11:40

9 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Vil taka undir með Gísla Tryggvasyni hér að ofan.  Vel mælt.

Bryndís Böðvarsdóttir, 14.9.2007 kl. 23:02

10 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Sammála því Bryndís. Takk fyrir kommentin kæru vinir.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 15.9.2007 kl. 09:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband