ÉG KÝS LANDRÓVER! -og hef bjórkæli fyrir náttborð

Hef samt á honum blúndudúk og blóm í vasa til að vera dömuleg.

Nýlega sendi Sibbi flugstjóri mér slóð á myndband af YouTube sem tekið var að mestu á hálendi Íslands. Það var þó ekki landið sem var í aðalhlutverki þar, heldur nýr en sígildur Land Rover Defender. Ótrúlegt hvað þessi jeppi hefur lítið breyst í áranna rás. Það er gaman að sjá hann þeysast um landið "þar sem steinvölurnar eru á stærð við risaeðluegg", eins og kynnir Fifth Gear komst svo ágætlega að orði.

Fyrir stelpurnar á Íslandi sem eru orðnar leiðar á litlum, bleikum, dömulegum dúkkulísubarbíbílum, ákvað ég að skella hingað linknum. Stöku strákar gætu haft gaman af að skoða líka: 

http://www.youtube.com/watch?v=h5aJ0iDNYns


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ekki misskilja mig Sveinn, að sjálfsögðu er hann í sambandi og fullur af bjór. Þú hefur kannski haldið að þar sem ég er kona, þá væri hann bara til skrauts?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.6.2007 kl. 23:54

2 Smámynd: Toshiki Toma

Sem japanskur strakur, kýs ég fekar TOYOTA RV4, sorry!! 
En í raun elska ég Corrora mína best

Toshiki Toma, 20.6.2007 kl. 00:11

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Minn fararskjóti er gömul sporttýpa af Jaguar. Hann er þýður eins og töfrateppi, enda engin risaeðluegg á vegunum hér. Bara hraðamyndavélar að vara sig á. 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 20.6.2007 kl. 00:31

4 Smámynd: Jens Guð

  Í sveitinni heima í Hjaltadal óku menn um á Land Rover.  Þeir ryðga ekki.  Þess vegna er undarlegt að álið skuli ekki hafa náð yfirhönd í bílaiðnaði.  Ég sá í nokkur ár um heimsauglýsingar fyrir Mazda.  Þegar ég nefndi þetta við japanska forstjórann sagði hann að trixið sé að fólk eigi nýjan bíl í sem skemmstan tíma vegna ryðs.  Þá kaupir fólk sér nýjan bíl þegar ryðblettir koma í ljós.   

Jens Guð, 20.6.2007 kl. 01:53

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Landróver á sér sérstakan sess í mínum huga, og úr því að hugurinn er kominn í Skagajörðinn okkar, þá gleymi ég aldrei árvissum viðburðum úr barnæskunni þegar Skari í Brekku kom á annann jóladag niður í Vallanes til að sækja okkur í jólaveislu hjá Hebbu frænku. Það var sama hvernig viðraði og hversu háir skaflarnir voru á leiðinni. Landróverinn komst allt.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 20.6.2007 kl. 02:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband